Skip to main content

Kynferðisofbeldi í nánum samböndum unglinga

Rannveig Ágústa Guðjónsdóttir, MA frá Stjórnmálafræðideild

„Kynferðisofbeldi í nánum samböndum unglinga hefur lítið verið rannsakað hérlendis og um málaflokkinn ríkir ákveðið úrræðaleysi.“ Þetta segir Rannveig Ágústa Guðjónsdóttir sem ákvað að gera bragarbót á og taka málefnið fyrir í meistararitgerð sinni í kynjafræði. „Rannsóknin snýst um reynslu kvenna sem upplifðu kynferðisofbeldi í nánu sambandi sem unglingar og ég fjalla m.a. um berskjöldun kvennanna fyrir reynslu sinni, afleiðingar ofbeldisins og úrvinnsluferli brotaþola.“

„Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að ungur aldur og reynsluleysi unglinga af nánum samböndum eigi þátt í berskjöldun kvennanna fyrir kynferðisofbeldi. Einnig komu fram víðtækar afleiðingar reynslunnar, svo sem á skólagöngu kvennanna. Þá benda niðurstöðurnar til þess að ekki sé gert ráð fyrir unglingum með reynslu sem þessa í þjónustu hérlendis.“ Rannsóknin veitir einnig innsýn í það hversu flókið kynferðisofbeldi í nánum samböndum unglinga getur verið. „Berskjöldun brotaþola, samfélagsviðhorf og normalísering ofbeldisins innan sambandsins gerðu það til að mynda að verkum að konunum þótti upplifun þeirra jafnvel eðlilegur hluti þess að vera í nánu sambandi. Þær gerðu sér þannig jafnvel ekki grein fyrir því að um ofbeldi væri að ræða,“ útskýrir Rannveig Ágústa.

Rannveig Ágústa Guðjónsdóttir

„Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að ungur aldur og reynsluleysi unglinga af nánum samböndum eigi þátt í berskjöldun kvennanna fyrir kynferðisofbeldi.“

Rannveig Ágústa Guðjónsdóttir

Hún segir hvatninguna til rannsókna vera vilja til að varpa ljósi á margslungna og flókna reynslu fólks. „Ég vonast líka til að stuðla að gagnrýninni hugsun og samfélagslegum umbótum. Rannsókn sem þessi hefur mikið gildi því hún vekur athygli á málaflokknum og skapar fræðilega þekkingu um kynferðisofbeldi í nánum samböndum unglinga.“

Í viðtölunum sem Rannveig Ágústa tók vegna rannsóknarinnar vakti reynsla eins viðmælandans áhuga hennar á því að skoða nánar svokallað kynferðiseinelti í íslenskri skólamenningu. „Kynferðiseinelti er regnhlífarhugtak yfir einelti sem hefur kyn brotaþola sem útgangspunkt og birtist gjarnan í því að brotaþoli þykir ekki sýna ásættanlega karlmennsku eða kvenleika. Ég er að vinna í þessu málefni núna.“

Leiðbeinandi: Gyða Margrét Pétursdóttir, lektor við Stjórnmálafræðideild.