Skip to main content

Sýningaropnun: Medieval Languages and Literatures

Sýningaropnun: Medieval Languages and Literatures - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
20. febrúar 2026 15:30 til 16:30
Hvar 

Edda

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Sýningin Medieval Languages and Literatures verður opnuð í Eddu, húsi íslenskunnar, föstudaginn 20. febrúar kl. 15.30. Boðið verður upp á léttar veitingar og allt áhugafólk er velkomið á opnunina eða síðar til að skoða sýninguna sem mun standa til 4. mars. 

Tilgangur sýningarinnar er að fræða um öll þau tungumál sem voru rituð í Evrópu á miðöldum og þær bókmenntir sem voru skapaðar á þessum fjölmörgu tungumálum. Meðal þeirra má nefna latínu, fornfrönsku, fornensku, fornslavnesk mál, hebresku og svo auðvitað norrænu. Markmið sýningarinnar er að vekja gesti til vitundar um menningarlega fjölbreytni á miðöldum og hún er hönnuð til að veita sem mestar upplýsingar um tungumálaflóru Evrópu á þessum tímum, og ekki síst um hin ríkulega bókmenntaarf sem álfa okkar státar af.

Sýningin er afrakstur samstarfs Háskóla Íslands við fjóra evrópska háskóla, Syddansk universitet í Óðinsvém í Danmörku, Univerzita Karlova í Prag í Tékklandi, Central European University í Vínarborg í Austurríki, og National University of Ireland. 

Sýningin Medieval Languages and Literatures verður opnuð í Eddu, húsi íslenskunnar, föstudaginn 20. febrúar kl. 15.30. 

Sýningaropnun: Medieval Languages and Literatures