Nöfn og menningararfur: Birna Lárusdóttir

Edda
Fyrirlestrasalur
Birna Lárusdóttir, doktor í landfræði, heldur opinn fyrirlestur sem nefnist „Place names in the making: Surtsey as an experimental space“ á 51. ráðstefnu NORNA (Norræn samvinnunefnd um nafnarannsóknir).
Haldið í fyrirlestrasal Eddu, fimmtudaginn 21. maí kl. 9:00. Verið öll velkomin.
Nöfn og menningararfur er yfirskrift ráðstefnu NORNA sem fer fram dagana 19.–21. maí í Eddu. Hún er skipulögð af Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum í samstarfi við Málvísindastofnun Háskólans og Nafnfræðifélagið. Sjá upplýsingar á heimasíðu ráðstefnunnar.
Á meðan ráðstefnunni stendur halda tveir boðsfyrirlesarar erindi sem verða opin almenningi, Birna Lárusdóttir og Frédérics Giraut. Fyrirlestur Frédérics verður haldinn í fyrirlestrasal Eddu, þriðjudaginn 19. maí kl. 9:30.
NORNA (Norræn samvinnunefnd um nafnarannsóknir) eru samtök norrænna fræðimanna sem stunda rannsóknir á nöfnum. Tilgangur samtakanna er að efla og hvetja til nafnfræðirannsókna á Norðurlöndunum og til samstarfs norrænna fræðimanna.
Birna Lárusdóttir, doktor í landfræði.
