Skip to main content

Málstofa: Raddir kennara Háskóla Íslands í stafrænni byltingu

Málstofa: Raddir kennara Háskóla Íslands í stafrænni byltingu - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
19. febrúar 2026 13:00 til 15:00
Hvar 

Saga

S-216

Nánar 
Málstofan fer að mestu fram á íslensku

Gervigreind í Háskóla Íslands: Staða, viðhorf og framtíðarhorfur

Tímasetning : 19. febrúar frá 13:00–15:00
Staðsetning: Saga, stofa S-261(Einnig verður í boði að taka þátt í streymi)

Gervigreind er að umbreyta landslagi háskólamenntunar með afgerandi hætti. En hver er raunveruleg upplifun þeirra sem standa í brúnni?

Á þessari málstofu verða kynntar niðurstöður umfangsmikillar könnunar sem lögð var fyrir kennara við Háskóla Íslands sumar og haustið 2025. Við rýnum í gögnin, hlustum á raddir kennara og ræðum hvernig háskólinn getur brugðist við.

Á málstofunni verður farið yfir:

  • Ný stefna HÍ um gervigreind: Kynning á stefnu um gervigreind og aðgengi að leiðbeiningum.
  • Raddir kennara – Niðurstöður spurningarkönnunar: Farið verður yfir hvernig kennarar nýta gervigreind í starfi sínu í dag, hvort þeir sjái hana sem tækifæri eða ógn, og hvar helstu áskoranirnar liggja í daglegri kennslu.
  • Framtíðarhorfur: Hvaða stuðningi kalla kennarar eftir og hvernig getur háskólinn komið til móts við þarfir þeirra til að efla akademískt starf?
  • Pallborð og opin umræða: Gott svigrúm verður fyrir spurningar og samtal um þessi mikilvægu málefni.

Nánari dagskrá verður kynnt þegar nær dregur.

Málstofan er kjörinn vettvangur fyrir alla sem láta sig háskólakennslu, tækniþróun og framtíð menntunar varða.

Umsjónamenn málstofunnar og rannsakendur eru þau Ásta Bryndís Schram, Bethany Louise Rogers, Hafsteinn Einarsson, María Kristín Bjarnadóttir og Sigurbjörg Jóhannesdóttir.

Hlökkum til að sjá ykkur í Sögu!

Gervigreind í Háskóla Íslands: Staða, viðhorf og framtíðarhorfur

Málstofa: Raddir kennara Háskóla Íslands í stafrænni byltingu