Fræðabiti á fimmtudegi

Saga
S-338
Fræðabiti á fimmtudegi 26. febrúar kl. 12.00-13.00 fjallar um Sameiginlega sýn um árangursríka lestrarkennslu fyrir öll börn: Getum við dregið lærdóm af the Joint Statement?
Í áratugi hafa ólík sjónarmið og ósætti um hvernig eigi að kenna lestur haft neikvæð áhrif á samtal og samvinnu. Eftir því sem tímanum vindur fram fjölgar rannsóknum sem hægt er að byggja ákvarðanir á. Árið 2023 vann hópur bandarískra sérfræðinga með ólík sjónarmið að sameiginlegri yfirlýsingu um hvernig lestrarkennsla gagnist best börnum sem eru að læra nýtt viðbótartungumál (sbr. ÍSAT í okkar tilfelli). Hópurinn nýtti ritrýndar rannsóknir og gögn til að komast að samkomulagi sem fól í sér ólík sjónarmið.
Amelia Jara Larimer er sérkennari og talmeinafræðingur frá Bandaríkjunum og doktorsnemi við Menntavísindasvið. Hún mun fjalla um samkomulagið sem er kallað the Joint Statement og hvort við á Íslandi getum dregið lærdóm af þeirri vinnu og niðurstöðum.
Öll velkomin
Málstofan verður einnig á Zoom.
Fræðabiti á fimmtudegi 26. febrúar kl. 12.00-13.00 fjallar um Sameiginlega sýn um árangursríka lestrarkennslu fyrir öll börn: Getum við dregið lærdóm af the Joint Statement?
