Skip to main content

Að skilja dyslexíu: Áhrif skilgreiningar á kennslu og greiningar á Íslandi

Að skilja dyslexíu: Áhrif á kennslu og greiningar á Íslandi - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
17. mars 2026 15:00 til 17:00
Hvar 

Streymi

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Fyrirlesturinn Að skilja dyslexíu: Áhrif skilgreiningar á kennslu og greiningar á Íslandi verður haldinn í streymi 17. mars 2026.  

Í fyrirlestrinum munu Dr. Hugh Catts og Dr. Charles Haynes fjalla um nýja skilgreiningu á dyslexíu (lesblindu). Viðburðurinn er á vegum Rannsókna- og fræðslustofu um þroska, læsi og líðan barna og ungmenna og Menntavísindasviðs. 

Í október 2025 var endurskoðuð skilgreining á dyslexíu gefin út af Alþjóðlegu dyslexíusamtökunum (International Dyslexia Association). Staða lestrargreininga á Íslandi er óljós og mikilvægt að nýjustu rannsóknir verði hafðar til hliðsjónar þegar brugðist er við lestrarvanda.  

Í erindinu verður fjallað um mótun nýju skilgreiningarinnar, ástæður þess að sú eldri var endurskoðuð og hvaða vísindalegu gögn liggja til grundvallar. Jafnframt verður fjallað um áhrif skilgreiningarinnar á kennslu og greiningar.  

 

Dr. Catts starfar við School of Communication Science and Disorders við Florida State University. Rannsóknir hans beinast m.a. að snemmtækri greiningu og forvörnum gegn lestrarvanda auk mats á lesskilningserfiðleikum. Hann hefur áður setið í stjórn Alþjóðlegu dyslexíusamtakanna (International Dyslexia Association) og einnig setið í stjórn og verið forseti Society for the Scientific Study of Reading. Hann hefur hlotið Samuel T. Orton-verðlaunin frá Alþjóðlegu dyslexíusamtökunum og heiðursviðurkenningu frá American Speech-Language-Hearing Association fyrir framlag sitt.  

Dr. Haynes er prófessor emeritus við MGH Institute of Health Professions í Boston. Hann var frumkvöðull í þróun kennsluaðferða fyrir börn með dyslexíu og málörðugleika. Rannsóknir hans beinast að tengslum talaðs og ritaðs máls og þeim þáttum sem hafa áhrif á læsi og læsisnám á ólíkum tungumálum. Árið 2014 hlaut hann Margaret Byrd Rawson Lifetime Achievement Award frá Alþjóðlegu dyslexíusamtökunum fyrir framlag sitt til dyslexíufræða, og árið 2025 hlaut hann Legacy Award samtakanna fyrir að hafa komið á fót og byggt upp alþjóðlegt samstarfsnet þeirra (Global Partners). 

Öll velkomin 

Hér er hægt að nálgast streymi: https://eu01web.zoom.us/j/63899628859