Skip to main content

Aðferðir hugsandi skólastofu á framhalds- og háskólastigi

Aðferðir hugsandi skólastofu á framhalds- og háskólastigi - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
28. maí 2026 9:00 til 16:00
Hvar 

Saga

S-261 (gengið inn Þjóðarbókhlöðumegin)

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Hvenær: 28. maí 2026, kl. 9-16 með klukkutíma hádegishléi 

Hvar: Saga við Hagatorg, S-261 (gengið inn Þjóðarbókhlöðumegin), 107 Reykjavík

SamSTEM verkefnið stendur fyrir námskeiði um aðferðir hugsandi kennslustofu fyrir kennara á framhalds- og háskólastigi. Námskeiðið verður á vinnustofuformi og fá þátttakendur að upplifa aðferðir hugsandi skólastofu undir leiðsögn Dr. Peter Liljedahl, prófessors í stærðfræðimenntun við Simon-Fraser háskólann í Kanada.

Í hugsandi skólastofu vinna nemendur saman að úrlausn verkefna í slembivöldum þriggja manna hópum og taka þannig virkan þátt í tímum. Framhaldsnámskeiðið er ætlað þeim sem tóku námskeið Peters í fyrrasumar (júní 2025). Námskeiðið er kennt út frá dæmum sem tengjast stærðfræði en aðferðirnar henta og eru notaðar í hinum ýmsu faggreinum og kennarar allra faggreina eru hjartanlega velkomin.

Framhaldsnámskeið er einn dagur, 28. maí kl. 9-16 með hádegishléi.

SamSTEM verkefnið býður starfsfólki HA, HÍ og HR þátttöku og hádegisverð endurgjaldslaust og því þarf ekki að fylgja leiðbeiningum um greiðslu þátttökugjalds í skráningarferlinu. 

Hlekkur á skráningu framhaldsnámskeiðs er hér.

Aðferðir hugsandi skólastofu á framhalds- og háskólastigi Hvenær: 28. maí 2026, kl. 9-16 með klukkutíma hádegishléi  Hvar: Saga við Hagatorg, S-261 (gengið inn Þjóðarbókhlöðumegin), 107 Reykjavík SamSTEM verkefnið stendur fyrir námskeiði

Aðferðir hugsandi skólastofu á framhalds- og háskólastigi