Aðferðir hugsandi skólastofu - sérhæft námskeið fyrir kennara annarra faggreina

Saga
S-261 (gengið inn Þjóðarbókhlöðumegin)
Aðferðir hugsandi skólastofu á framhalds- og háskólastigi - sérhæft námskeið fyrir kennara annarra faggreina
Hvenær: 29. maí 2026, kl. 9-16 með klukkutíma hádegishléi
SamSTEM verkefnið stendur fyrir námskeiði um aðferðir hugsandi kennslustofu fyrir kennara á framhalds- og háskólastigi. Námskeiðið verður á vinnustofuformi og fá þátttakendur að upplifa aðferðir hugsandi skólastofu undir leiðsögn Dr. Peter Liljedahl, prófessors í stærðfræðimenntun við Simon-Fraser háskólann í Kanada.
Í hugsandi skólastofu vinna nemendur saman að úrlausn verkefna í slembivöldum þriggja manna hópum og taka þannig virkan þátt í tímum. Á þessu sérhæfða námskeiði verður sérstaklega hugað að notkun aðferðanna í öðrum faggreinum en stærðfræði. Við mælum með að kennarar annarra faggreina sæki inngangsnámskeiðið auk sérhæfða námskeiðsins.
Sérhæft námskeið annarra faggreina er einn dagur, 29. maí kl. 9-16 með hádegishléi.
SamSTEM verkefnið býður starfsfólki HA, HÍ og HR þátttöku og hádegisverð endurgjaldslaust og því þarf ekki að fylgja leiðbeiningum um greiðslu þátttökugjalds í skráningarferlinu.
Aðferðir hugsandi skólastofu á framhalds- og háskólastigi - sérhæft námskeið fyrir kennara annarra faggreina Hvenær: 29. maí 2026, kl. 9-16 með klukkutíma hádegishléi Hvar: Saga við Hagatorg, S-261 (gengið inn Þjóðarbókhlöðumegin), 107 Reykjavík
