Skip to main content

Nýsköpunarmót Álklasans 2026

Nýsköpunarmót Álklasans 2026 - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
26. febrúar 2026 13:00 til 16:00
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Salur 023

Nánar 
Öll velkomin

Nýsköpunarmót Álklasans verður haldið í Veröld - húsi Vigdísar, sal 023, fimmtudaginn 26. febrúar frá kl. 13:00 - 16:00.

Að mótinu standa Álklasinn, Samtök iðnaðarins, Samál, Háskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík.

Nýsköpunarmótið er opið öllum. Þátttakendur eru hvattir til að skrá sig á viðburðinn.

Dagskrá

Opnun Nýsköpunarmóts Álklasans

  • Sigurður Magnús Garðarsson, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs HÍ
  • Ármann Gylfason, forseti Verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík

Litið um öxl

  • Rannveig Rist – forstjóri Rio Tinto á Íslandi

Rafgreindur kísill

  • Guðrún Sævarsdóttir, prófessor við Háskólann í Reykjavík

Kaffihlé

Örerindi

  • DTE MetalliQ - ný kynslóð efnagreiningarbúnaðar fyrir bráðið álmelmi
    Kristján Leósson, CTO hjá DTE

  • Alinsa: Computer vision and AI in aluminum smelters
    Brynja Þorsteinsdóttir, Visk

  • Nýting Glatvarma við forhitun hráefna
    Rútur Ingi Karlsson , Eurometal
  • Reveal – Ál sem eldsneyti
    Páll Árnason, Tæknisetur

Afhending nemendaviðurkenninga og kynning á nemendaverkefnum.

Í lok dagskrár verður boðið upp á léttar veitingar.