Skip to main content
23. febrúar 2026

Gavin Lucas fær Gad Rausin verðlaunin í ár

Gavin Lucas fær Gad Rausin verðlaunin í ár - á vefsíðu Háskóla Íslands

Tilkynnt hefur verið að Gavin Lucas, prófessor í fornleifafræði við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði við Háskóla Íslands, hljóti Gad Rausing verðlaunin í ár fyrir framúrskarandi framlag til rannsókna á sviði hugvísinda. Í fréttatilkynningu sænsku Kungliga vitterhetsakademien segir að Gavin hljóti verðlaunin fyrir rannsóknir sínar á hinum kennilega grundvelli fornleifafræðinnar. Haft er eftir Lars Berglund, formanni valnefndar, að Gavin hafi staðið í fararbroddi vísindalegra undirstöðukenninga í fornleifafræði í tvo áratugi og þróað nýjar hugmyndir um hvernig við skiljum tímann og um samband frásagnar og fornleifa. Kenningar sínar byggi Gavin á áralöngum fornleifarannsóknum í Englandi, Suður-Afríku, Tyrklandi en ekki síst á Íslandi.

Verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn 20. mars næstkomandi. Gad Rausing verðlaunin eru veitt norrænum fræðimanni á sviði hugvísinda ár hvert. Það voru börn Gad Rausing sem stofnuðu til verðlaunanna árið 2002 til minningar um föður sinn. Gad Rausing var doktor í fornleifafræði og velgjörðarmaður fræðafólks á sviði fornleifafræði og menningarrannsókna.

Gavin Lucas lauk doktorsnámi við Cambridge-háskóla en hefur starfað við Háskóla Íslands frá 2006 og hafa rannsóknir hans beinst að fornleifafræði nýaldar og fornleifafræðikenninga. Hann hefur stýrt fjölda rannsóknaverkefna hér á landi, m.a. í Skálholti, Viðey og Seltjarnarnesi en auk þess unnið við fornleifarannsóknir víða um heim, t.d. á Ítalíu og Suður-Afríku. Gavin hefur birt fjölda greina um fornleifafræðikenningar og er höfundur nokkurra bóka, þ.á m. Understanding the Archaeological Record (Cambridge University Press, 2012), Writing the Past (Routledge, 2019), Making Time (Routledge, 2021) og Archaeological Situations (Routledge, 2022). Hann hlaut Rivers Medal viðurkenninguna frá bresku mannfræðistofnuninni The Royal Anthropological Institute árið 2022.

Sjá nánar á síðu Kungliga vitterhetsakademien.

Gavin Lucas