Aðferðir hugsandi skólastofu á framhalds- og háskólastigi – Inngangsnámskeið

Saga
S-261 (gengið inn Þjóðarbókhlöðumegin)
Hvenær: 26.-27. maí 2026, kl. 9-16 með klukkutíma hádegishléi.
Hvar: Saga við Hagatorg, S-261 (gengið inn Þjóðarbókhlöðumegin), 107 Reykjavík
SamSTEM verkefnið stendur fyrir námskeiði um aðferðir hugsandi kennslustofu fyrir kennara á framhalds- og háskólastigi. Námskeiðið verður á vinnustofuformi og fá þátttakendur að upplifa aðferðir hugsandi skólastofu undir leiðsögn Dr. Peter Liljedahl, prófessors í stærðfræðimenntun við Simon-Fraser háskólann í Kanada.
Í hugsandi skólastofu vinna nemendur saman að úrlausn verkefna í slembivöldum þriggja manna hópum og taka þannig virkan þátt í tímum. Á inngangs-námskeiðinu verður sérstaklega skoðað hvernig festa megi námsefnið í sessi (e. consolidation) í hugsandi skólastofu, þ.e. hvernig kennari geti gert samantekt á því sem unnið var með í tímanum. Kennt verður út frá dæmum sem tengjast stærðfræði en aðferðirnar henta og eru notaðar í hinum ýmsu faggreinum og kennarar allra faggreina eru hjartanlega velkomin.
Inngangsnámskeið er tveir dagar, 26. og 27. maí kl. 9-16 með hádegishléi.
SamSTEM verkefnið býður starfsfólki HA, HÍ og HR þátttöku og hádegisverð endurgjaldslaust.
Hlekkur á skráningu inngangsnámskeiðs er hér
Kennarar annarra faggreina en stærðfræði geta bætt við inngangsnámskeiðið einum sérhæfðum námskeiðsdegi á föstudeginum sem er hannaður sérstaklega fyrir þau.
Hér er skráning á sérhæft námskeið fyrir kennslu annarra faggreina en stærðfræði.
Aðferðir hugsandi skólastofu á framhalds- og háskólastigi – Inngangsnámskeið Hvenær: 26.-27. maí 2026, kl. 9-16 með klukkutíma hádegishléi. Hvar: Saga við Hagatorg, S-261 (gengið inn Þjóðarbókhlöðumegin), 107 Reykjavík
