Málstofa: Raddir kennara Háskóla Íslands í stafrænni byltingu

Saga
S-261
Gervigreind í Háskóla Íslands: Staða, viðhorf og framtíðarhorfur
Tímasetning :
19. febrúar frá 13:00–15:00
Staðsetning:
Háskóli Íslands, Saga, stofa S-261 og á Zoom: https://eu01web.zoom.us/j/3545254000?pwd=8idKAa43lKeeq69ZmZZFGDbvZIa26t.1&omn=69673796109
Gervigreind er að umbreyta landslagi háskólamenntunar með afgerandi hætti. En hver er raunveruleg upplifun þeirra sem standa í brúnni?
Á þessari málstofu verða kynntar niðurstöður umfangsmikillar könnunar sem lögð var fyrir kennara við Háskóla Íslands sumar og haustið 2025. Við rýnum í gögnin, hlustum á raddir kennara og ræðum hvernig háskólinn getur brugðist við.
Á málstofunni verður farið yfir:
- Ný stefna HÍ um gervigreind: Kynning á stefnu um gervigreind og aðgengi að leiðbeiningum.
- Raddir kennara – Niðurstöður spurningarkönnunar: Farið verður yfir hvernig kennarar nýta gervigreind í starfi sínu í dag, hvort þeir sjái hana sem tækifæri eða ógn, og hvar helstu áskoranirnar liggja í daglegri kennslu.
- Framtíðarhorfur: Hvaða stuðningi kalla kennarar eftir og hvernig getur háskólinn komið til móts við þarfir þeirra til að efla akademískt starf?
- Pallborð og opin umræða: Gott svigrúm verður fyrir spurningar og samtal um þessi mikilvægu málefni.
Dagskrá
- Gervigreindarstefna HÍ, nýr leiðbeiningarvefur og framkvæmd rannsóknar
- María Kristín Bjarnadóttir - Spunagreind í kennslu: Notkun og áskoranir
- Sigurbjörg Jóhannesdóttir - Viðhorf kennara til notkunar gervigreindar
- Ásta Bryndís Schram - Raddir kennara: Greining á áskorunum, misnotkun og brýnustu úrlausnarefnum
- Hafsteinn Einarsson - Stuðningur og stefna – Hvað getur HÍ gert?
Bethany Louise Rogers - Pallborðsumræður
Málstofan er kjörinn vettvangur fyrir alla sem láta sig háskólakennslu, tækniþróun og framtíð menntunar varða.
Umsjónamenn málstofunnar og rannsakendur eru þau Ásta Bryndís Schram, Bethany Louise Rogers, Hafsteinn Einarsson, María Kristín Bjarnadóttir og Sigurbjörg Jóhannesdóttir.
Hlökkum til að sjá ykkur í Sögu!
Gervigreind í Háskóla Íslands: Staða, viðhorf og framtíðarhorfur
