Skip to main content

Vinnusmiðjur um menntun barna með fjölbreyttan tungumálabakgrunn

Vinnusmiðjur um menntun barna með fjölbreyttan tungumálabakgrunn - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
14. nóvember 2025 12:30 til 17:00
Hvar 

SAGA

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Við bjóðum kennurum og skólastjórnendum til ráðstefnu föstudaginn 14. nóvember kl. 12.30 - 17:00 í Sögu, húsi Menntavísindasviðs Háskóla Íslands. 

Við fræðumst um hvað ný íslensk rannsókn leiðir í ljós um stöðu barna innflytjenda í skólakerfinu, hvernig börnin læra að nota mörg tungumál og hvað kennarar þeirra og foreldrar geta gert til að styðja við nám þeirra og góða líðan í skóla. Einnig fáum við nýjustu upplýsingar um stuðning opinberra aðila við menntun, mótttöku og menningu þessara barna. Eftir klukkutímalanga sameiginlega dagskrá stendur valið milli 12 spennandi vinnusmiðja þar sem fram fer stutt fræðsla en áhersla er á umræður um mörg athyglisverð málefni á þessu sviði. 

12.30-13.30     Aðalerindi í sal S-114 í Sögu og í streymi. Streymishlekkur á aðalerindi.

13.30-14.00     Kaffi og námsgagnasýning frá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 

14.00-14.50     Fyrri vinnusmiðjur – fræðsla og umræður þátttakenda 

15.10-16.00     Seinni vinnusmiðjur – fræðsla og umræður þátttakenda 

16.00-17.00     Léttar veitingar og spjall 

Nánari dagskrá aðalerinda og vinnusmiðja má sjá hér

Þátttakendur velja milli vinnusmiðja og skrá sig fyrir fyrri og seinni umferð, skráning HÉR 

Vinnusmiðjurnar verða ekki í streymi en fyrirlestrar í sal fyrsta klukkutímann verða það fyrir þau sem ekki komast í hús, skráning HÉR 

Rannsóknarhópur um tungumálastefnu og starfshætti fjölskyldna innflytjenda á Íslandi og áhrif þeirra á menntun (LPP) stendur fyrir ráðstefnunni ásamt MEMM – menntun, mótttaka, menning – sem er þróunarverkefni leitt af mennta- og barnamálaráðuneyti í samvinnu við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og Reykjavíkurborg.

Vinnusmiðjur um menntun barna með fjölbreyttan tungumálabakgrunn