Skip to main content

Viðbrögð við ofbeldi frá sjónarhorni innflytjendakvenna

Viðbrögð við ofbeldi frá sjónarhorni innflytjendakvenna - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
5. nóvember 2025 12:00 til 13:00
Hvar 

Háskólatorg

HT-103

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Kynja- og margbreytileikasjónarmið á Kvennaári: Viðbrögð við ofbeldi frá sjónarhorni innflytjendakvenna

Kynjafræði við Stjórnmálafræðideild, í samvinnu MARK – Miðstöð margbreytileika og kynjarannsókna, býður til fundaraðar um kynja- og margbreytileikasjónarmið á Kvennaári.

Í þetta sinn er sjónum beint að áherslum Kvennaárs um kynbundið ofbeldi og verða kynntar niðurstöður rannsóknar á félagslegum og kerfislægum innviðum til að bregðast við ofbeldi í nánum samböndum frá sjónarhorni kvenna með erlendan bakgrunn.

Fyrirlesari er Flora Tietgen, doktorsnemi og aðjúnkt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Erindi Floru ber heitið: "Immigrant women and intimate partner violence: Rethinking social and institutional frameworks".

Í pallborði verða Linda Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfs, og Najlaa Atallah, stjórnarkona WOMEN. Fundarstjóri verður Þorgerður Einarsdóttir, prófessor í kynjafræði.

Viðburðurinn fer fram á ensku.

Um fundaröðina:

Margt hefur áunnist í jafnréttismálum síðustu áratugi, og til að stuðla að framþróun er gagnlegt að skapa vettvang þar sem rannsakendur og hagaðilar, sem eru nú þegar að vinna gott verk á sviðinu, geta rýnt stöðuna og rætt helstu áskoranir. Kvennaár hefur sett fram kröfur sem má skipta upp í þrjár áherslur: vanmat á kvennastörfum og launajafnrétti; ólaunaða vinnu og umönnunarábyrgð; og kynbundið ofbeldi. Á hverjum fundi verður eitt áherslusvið tekið fyrir, með kynja- og margbreytileikasjónarmið í forgrunni.
 

Fyrirlesari er Flora Tietgen, doktorsnemi og aðjúnkt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands

Viðbrögð við ofbeldi frá sjónarhorni innflytjendakvenna