Skip to main content

Tölum um samkeppnir - skila þær bestu niðurstöðunni?

Tölum um samkeppnir - skila þær bestu niðurstöðunni? - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
19. nóvember 2025 8:30 til 10:00
Hvar 

Gróska

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs stendur fyrir opnum fyrirlestrum í vetur um áhugaverð málefni sem snúa að hönnun og arkitektúr. Næst verður rætt um samkeppnir og hvort þær skila bestu niðurstöðu þegar kemur að hinu byggða umhverfi.

Á Íslandi í dag eru miklar og líflegar umræður um hvernig við erum að byggja borgina og húsnæði fyrir fólk og heimili. Þar mætir krafa um hraða, magn og verð áherslu á gæði, endingu og umhverfi sem tryggir gott samfélag, mannlíf, jafnrétti.

Undanfarið höfum við séð mörg flott verk þar sem samkeppnir hafa verið undanfari; gestastofur í þjóðgörðum sem fengu viðurkenningu í ár fyrir Bestu fjárfestingu á Hönnunarverðlaununum, Elliðaárstöð sem var valinn Staður ársins á Hönnunarverðlaununum, félagsbústaði á Sjómannaskólareit - að auki Smiðju og Eddu sem voru Staðir ársins síðustu ár á Hönnunarverðlaununum.

Fjögur snörp erindi verða flutt um samkeppnir og reynslu af þeim:

- Björn Guðbrandsson, arkitekt FAÍ og eigandi ARKÍS
- Brynhildur Pálsdóttir, vöruhönnuður hluti af Tertu
- Hulda Jónsdóttir, arkitekt FAÍ og eigandi Hjark arkitektúr
- Jón Pálmi Guðmundsson, framkvæmdastjóri Urriðaholts

Freyr Eyjólfsson verkefnastjóri hringrásarhagkerfis hjá SORPU stjórnar umræðum og fundarstjóri er Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs.

Húsið verður opnað kl. 8:30 með kaffi og kruðeríi og viðburðurinn hefst stundvíslega kl. 9! Öll velkomin.

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs stendur fyrir opnum fyrirlestrum í vetur um áhugaverð málefni sem snúa að hönnun og arkitektúr. Næst verður rætt um samkeppnir og hvort þær skila bestu niðurstöðu þegar kemur að hinu byggða umhverfi.

Tölum um samkeppnir - skila þær bestu niðurstöðunni?