Skip to main content

Miðdegisfundur: Byggjum fyrir fólk

Miðdegisfundur: Byggjum fyrir fólk - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
22. janúar 2026 15:00 til 16:30
Hvar 

Norræna húsið

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Nærri öllum okkar tíma er varið inni í eða nálægt byggingum, sem gerir þær að ómissandi hluta af lífi okkar. Undanfarið hafa áhrif hins byggða umhverfis á heilsu okkar fengið athygli og spurningar um það hvernig við bætum byggingar til að stuðla að líkamlegri og andlegri heilsu fólks verið til umræðu á Íslandi. Á sama tíma stefnum við einnig að því að bæta umhverfisáhrif bygginga.

Þessari spurningu og fleirum verður svarað á viðburðinum sem Grænni byggð, Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands og Norræna húsið halda í Norræna húsinu, fimmtudaginn 22. janúar, kl. 15:00-16:30.

Viðburðurinn hefst á því að kynna evrópska verkefnið New European Bauhaus, sem miðar að því að samþætta umhverfislega sjálfbærni við vellíðan notenda byggingarumhverfisins og möguleika þess til þess að mæta ýmsum áskorunum sem við stöndum frammi fyrir á Íslandi.

Í kjölfarið verða pallborðsumræður um menningarlegar, félagslegar og umhverfislegar víddir byggingarumhverfisins og hvernig við getum blandað þeim saman.

Skráning á fundinn í Norræna húsinu er nauðsynleg og verður lokað fyrir skráningu þegar hámarksfjölda er náð - fyrstur kemur fyrstur fær! Skráning fer fram hér: https://forms.gle/NmBAbW7ZnFKVtSLV9

Viðburðinum verður einnig streymt, skráning er ekki nauðsynleg til þess að fylgjast með í streymi.

Drög að dagskrá:

1. Opnun fundar.
2. NEB kynning og aðrar kynningar.
3. Pallborðsumræður.
4. Spurningar úr sal.
5. Samantekt.

Í pallborði sitja:
Arnhildur Pálmadóttir, s. ap arkitektar
Elín Þórólfsdóttir, HMS
Halla Helgadóttir, Hönnunarmiðstöð
Páll Jakob Líndal, ENVALYS og HR

Fundarstjóri verður Anna María Bogadóttir, arkitekt.

Grænni byggð, Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands og Norræna húsið bjóða til miðdegisfundarins Byggjum fyrir fólk í Norræna húsinu, fimmtudaginn 22. janúar, kl. 15:00-16:30.

Miðdegisfundur: Byggjum fyrir fólk