Skip to main content

Ísland, einokunarverslun og norðlæg jaðarsvæði ríkis Danakonungs á 18. öld

Ísland, einokunarverslun og norðlæg jaðarsvæði ríkis Danakonungs á 18. öld - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
10. febrúar 2026 16:00 til 17:00
Hvar 

Árnagarður

Stofa 304

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Emil Gunnlaugsson, doktorsnemi við Háskólann í Lundi í Svíþjóð, heldur erindi í Málstofu í félags- og hagsögu sem nefnist Ísland, einokunarverslun og norðlæg jaðarsvæði ríkis Danakonungs á átjándu öld. Málstofan verður haldin í stofu 304 í Árnagarði, þriðjudaginn 10. febrúar kl. 16-17.

Um fyrirlesturinn

Lengst af átjándu öld var allri verslun á norðlægum jaðarsvæðum ríkisins stjórnað af verslunarfélögum með einokunarrétt, oftast undir stjórn frá Kaupmannahöfn en í mörgum tilvikum voru þessi félög, stjórnendur þeirra eða eigendur þau sömu. Í erindinu verður lögð áhersla á að setja Ísland í samhengi sem hluta af stærra pólitísku og efnahagslegu rými innan ríkisins, þar sem verslunarkerfið er tengt Grænlandi, Færeyjum og Finnmörku í ríkari mæli en áður hefur verið gert, með sérstakri áherslu á síðari hluta átjándu aldar. Markmiðið með erindinu er ekki að veita heildstæða mynd af verslunarkerfinu, heldur að draga fram tiltekna þætti og einstaklinga til þess að undirstrika bæði sameiginleg og ólík einkenni einokunarverslunarinnar og tengingar hennar, og sýna hana sem fyrirbæri sem er meira en einungis íslenskt.

Um fyrirlesarann

Emil Gunnlaugsson er með BA- og MA-próf í sagnfræði frá Háskóla Íslands. Hann er nú búsettur í Lundi, þar sem hann stundar doktorsnám við samnefndan háskóla.

Emil Gunnlaugsson

Ísland, einokunarverslun og norðlæg jaðarsvæði ríkis Danakonungs á 18. öld