Hvað er í gangi í íslenskri máltækni? Vélþýðingar og fordómar í gervigreind

Hvenær
27. október 2025 15:00 til 16:30
Hvar
Veröld - Hús Vigdísar
Stofa 008
Nánar
Aðgangur ókeypis
Í haust fara fram vikulegir fyrirlestrar á vegum Máltækniseturs. Fyrirlesarar frá HÍ, Árnastofnun og HR kynna yfirstandandi rannsóknarverkefni og nýsköpunarfyrirtæki segja frá starfsemi sinni. Fjallað verður um efni á borð við risamállíkön og gervigreind, talgreiningu og -gervingu og málvinnslu.
Mánudaginn 27. október eru tveir fyrirlestrar á dagskrá:
- Kl. 15–15:40. Vélþýðingar fyrir íslensku – nýjasta tækni og vísindi. Steinþór Steingrímsson
- Kl. 15:50–16:30. Þegar gervigreind lærir fordóma – og hjálpar okkur að greina þá. Steinunn Rut Friðriksdóttir
Fyrirlestraröðin fer fram í stofu 008 í Veröld.
Í haust fara fram vikulegir fyrirlestrar á vegum Máltækniseturs.
