Heilsan okkar: Langvinn einkenni Covid

Veröld - Hús Vigdísar
Heilsan okkar – Langvinn einkenni Covid
Annar fundur í fundaröðinni Heilsan okkar haustið 2025 fer fram í Veröld – húsi Vigdísar föstudaginn 31. október kl. 11:30 til 13:00
Markmið fundarins er að veita heildstæða yfirsýn yfir langvinn einkenni covid frá mörgum sjónarhornum.
Umsjón og ritstjórn: Jóhanna E. Torfadóttir
Fundarstjóri: Magnús Gottfreðsson, prófessor við Læknadeild HÍ
Hlekkur á beint streymi: https://vimeo.com/event/5472609
Dagskrá
- Friðbjörn Sigurðsson, læknir – Í ljósi sögunnar - átti langvinnt Covid að koma á óvart?
-
Ingibjörg Magnúsdóttir, doktorsnemi í lýðheilsuvísindum – Langvinn andleg, líkamleg og vitræn einkenni COVID: Rannsóknir í alþjóðlega COVIDMENT samstarfinu
-
Karl Kristjánsson, yfirlæknir Reykjalundi – Langvinn einkenni eftir Covid, er ávinningur af endurhæfingu
-
Sigurveig Þ. Sigurðardóttir, yfirlæknir ofnæmislækninga á Landspítala – Ónæmiskerfið og langvinn einkenni Covid
-
Steinunn Gestsdóttir, prófessor í sálfræði – Í klónum á Covid
-
María Heimisdóttir, landlæknir – Stuðningur við sjúklinga – rétt þjónusta á réttum stað
- Pallborð – umræður
Heilsan okkar er fundaröð Háskóla Íslands og Landspítala sem hefur það að markmiði að varpa ljósi á áríðandi mál líðandi stundar er varða heilsu og heilbrigðisþjónustu. Þessir mánaðarlegu upplýsingafundir eru öllum opnir og verða á dagskrá síðasta föstudag hvers mánaðar.