Hátíð brautskráðra doktora

Hvenær
1. desember 2025 13:00 til 14:00
Hvar
Aðalbygging
Hátíðasalur
Nánar
Aðgangur ókeypis
Hátíð brautskráðra doktora fer fram í fjórtánda sinn í Hátíðasal skólans mánudaginn 1. desember kl. 13.
Á athöfninni munu doktorar sem brautskráðst hafa frá Háskóla Íslands á tímabilinu 1. desember 2024 til 1. desember 2025 taka við gullmerki skólans.
Doktorsnám við Háskóla Íslands hefur eflst mjög frá aldamótum og hefur framlag doktorsnema til rannsókna og kennslu við skólann átt sinn þátt í aukinni velgengni hans. Í samstarfi við leiðbeinendur sína leggja doktorsnemar af mörkum mikilvægan skerf til þekkingarleitar og nýsköpunar og taka virkan þátt í að efla Háskólann sem alþjóðlega rannsóknastofnun.
Hátíð brautskráðra doktora fer fram í fjórtánda sinn í Hátíðasal skólans mánudaginn 1. desember kl. 13.
