Skip to main content

Háskóli Íslands á UTmessu

Háskóli Íslands á UTmessu - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
7. febrúar 2026 11:00 til 16:00
Hvar 

Harpa - Silfurberg

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Veflausn sem nýtist til að finna vísbendingar um raskanir og sjúkdóma í tali fólks, íshellir í sýndarveruleika, tölvusýn inn í mannsheilann, stafrænir tvíburar og félagslegir töfrar án stafrænna milliliða er meðal þess sem verður að finna á svæði Háskóla Íslands á tæknidegi UTmessunnar 7. febrúar í Hörpu.

Tæknidagur UTmessunnar er opinn öllum og aðgangur ókeypis. Þar geta gestir kynnt sér ýmsar tækninýjungar og rannsóknir tengdar upplýsingatækni á afar breiðum grunni ásamt því að spreyta sig á alls kyns þrautum.

Á sýningarsvæði Háskóla Íslands í Silfurbergi kennir ýmissa grasa en þar kynnir starfsfólk og nemendur af mjög fjölbreyttum fræðasviðum skólans verkefni og nýjungar sem þau vinna að.

Hin árlega Hönnunarkeppni HÍ fer einnig fram á hátíðinni, eins og undanfarin ár.

UTmessan hefur verið haldin í 15 ár en markmið hennar er að kynna nýjustu strauma og stefnur í tölvu- og tækniheiminum bæði fyrir fagfólki og almenningi.

Hægt er að kynna sér dagskrá UTmessu á vef ráðstefnunnar.