Skip to main content

Grafið í rústir Þingeyraklausturs: Miðstöð íslenskrar menningar í 450 ár

Grafið í rústir Þingeyraklausturs: Miðstöð íslenskrar menningar í 450 ár - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
11. febrúar 2026 12:00 til 13:00
Hvar 

Aðalbygging

Stofa 050

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Jakob Orri Jónsson heldur fyrirlestur í fyrirlestraröðinni Nýjar rannsóknir í íslenskri fornleifafræði sem haldin er á vegum Félags fornleifafræðinga, námsbrautar í fornleifafræði við HÍ og Þjóðminjasafns Íslands. Fyrirlestur Jakobs nefnist Grafið í rústir Þingeyraklausturs: Miðstöð íslenskrar menningar í 450 ár.

Fyrirlesturinn verður haldinn í stofu 050 í Aðalbyggingu Háskóla Íslands, miðvikudaginn 11. febrúar kl. 12:00-13:00. Einnig verður hægt að fylgjast með fyrirlestrinum í streymi á Zoom.

Um fyrirlesturinn 

Þingeyraklaustur, á Þingeyrum í Húnabyggð, var langlífast af öllum miðaldaklaustrum Íslands en klaustrið var stofnað árið 1133 og því lokað 1551. Á þeim hartnær 420 árum sem klaustrið var opið var þar virk handrita- og bókagerð og er vitað um mörg handrit sem hafa lifað af til okkar daga sem gerð voru í klaustrinu. Þessi handrit eru ekki bara trúarlegs eðlis en einnig voru þar rituð önnur verk, svo sem Íslendingasögur, Konungasögur og riddarasögur. Er því ekki ofsögum sagt að Þingeyraklaustur hafi verið ein mikilvægasta miðstöð menningar á Íslandi á miðöldum.

Fornleifarannsóknir á Þingeyraklaustri hafa staðið yfir, með hléum, frá 2014 en uppgröftur hófst 2018. Á þeim tíma hefur verið grafið í klausturkirkjuna, kirkjugarð klaustursins og klausturbyggingar, auk yngri minja en greftrað var í kirkjugarðinum allt fram á tuttugustu öld. Þessar rannsóknir hafa leitt í ljós öskuhauga frá miðöldum fram á tuttugustu öld, rústir torfbygginga með vísbendingar töluvert timburvirki og hafa einar 30 grafir verið grafnar upp, þ.m.t grafir þriggja klausturhaldara.

Jakob Orri Jónsson.

Grafið í rústir Þingeyraklausturs: Miðstöð íslenskrar menningar í 450 ár