Skip to main content

FRESTAÐ! Kvöldstund með smávinum: Að skrifa stutt

FRESTAÐ! Kvöldstund með smávinum: Að skrifa stutt - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
11. desember 2025 20:00 til 21:30
Hvar 
Nánar 
Aðgangur ókeypis

Viðburðinum hefur verið frestað fram í janúar.

STUTT-rannsóknastofa í smásögum og styttri textum heldur áfram með mánaðarleg kvöld með smávinum í Gunnarshúsi. Höfundar og þýðendur fjalla um verk sín og/eða þýðingar og lesa valda texta. Megin markmið þessara stunda er að skapa tækifæri til að kynnast ólíkum stuttum bókmenntatextum, gömlum og nýjum, og verða fróðari um þá, hvort sem þeir kallast örsögur, smáprósar, prósaljóð eða eitthvað annað. Einnig að njóta samveru við upplestur og umfjöllun verkanna. Kvöldin eru skipulögð út frá þemum. Þann 11. desember verður sjónum beint að því að skrifa stutt.

Gestir fá tækifæri til að bera fram spurningar og bregðast við upplestri og umfjöllun. Boðið verður upp á kaffi og kleinur. Verið hjartanlega velkomin!

Umsjón hafa Kristín Guðrún Jónsdóttir og Ásdís R. Magnúsdóttir.

Haldið í Gunnarshús, Dyngjuvegi 8, Reykjavík, þann 11. desember kl. 20:00-21:30.

Dagskrá: 

  • Þórarinn Eldjárn: Dreymt bert
  • Sigurbjörg Þrastardóttir: Mæður geimfara
  • Birta Þórhallsdóttir: Einsamræður
  • Gyrðir Elíasson: Lungnafiskarnir, Þöglu myndirnar, Pensilskrift

Efni kvöldstundanna 2026 verður m.a.: Gömul form í nýjum búningi: lesið í hið liðna; Eldri þýðingar og Minningar: skemmti- og atvikasögur.

Viðburðurinn er haldinn á vegum Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum.

STUTT-rannsóknastofa í smásögum og styttri textum heldur áfram með mánaðarleg kvöld með smávinum í Gunnarshúsi.

FRESTAÐ! Kvöldstund með smávinum: Að skrifa stutt