Skip to main content

FRESTAÐ! Klofasteinar fyrir norðan og landnám Íslands

Klofasteinar fyrir norðan og landnám Íslands - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
27. nóvember 2025 16:30 til 17:30
Hvar 

Edda

Fyrirlestrasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Viðburði hefur verið frestað vegna veikinda. Nýr tími auglýstur síðar.

Helgi Þorláksson, prófessor emeritus í sagnfræði við Háskóla Íslands, flytur fyrirlestur á vegum Miðaldastofu HÍ sem hann nefnir „Klofasteinar fyrir norðan. Geta klofasteinar sagt eitthvað um landnám Íslands og þá hvað helst?“

Fyrirlesturinn fer fram fyrirlestrasal Eddu, fimmtudaginn 27. nóvember kl. 16:30. Hann verður haldinn á íslensku og er öllum opinn.

Um fyrirlesturinn

Fyrirlesari birti grein árið 2023 þar sem settar eru fram ábendingar um að stórtækir landnámsmenn á Íslandi muni hafa getað ákveðið hvar mörk skyldu vera milli svæða eða stórra jarða sem þeir námu og útdeildu. Vísbendingar um þetta taldi fyrirlesari vera allstóra, klofna steina, svonefnda klofasteina, á mörkum á Suðurlandi, suðvesturhorni landsins og í Borgarfirði, alls 34 dæmi. Hann rökstuddi að steinarnir hefðu iðulega fengið þetta hlutverk á elstu tíð. Fyrirlesari ber núna saman við 39 klofasteina á mörkum í þremur sýslum nyrðra, Húnavatnssýslu, Skagafjarðarsýslu og Eyjafjarðarsýslu.

Um fyrirlesarann

Helgi Þorláksson er prófessor emeritus í sagnfræði við Háskóla Íslands. Hann fékkst í kennslu og rannsóknum einkum við Íslands- og Norðurlandasögu frá um 900 til um 1800, svið pólitískrar sögu, félagssögu og hagsögu. Doktorsritgerð hans fjallar um hagsögu Íslands á 13. og 14. öld og náin tengsl við Noreg.

Helgi Þorláksson, prófessor emeritus í sagnfræði við Háskóla Íslands, flytur fyrirlestur á vegum Miðaldastofu HÍ sem hann nefnir „Klofasteinar fyrir norðan. Geta klofasteinar sagt eitthvað um landnám Íslands og þá hvað helst?“

Klofasteinar fyrir norðan og landnám Íslands