Áfangamat: Bryndís Jóna Jónsdóttir

Saga
S-285
Farsælir kennarar – farsæl menntun
Möguleg áhrif núvitundarþjálfunar á starfstengdan velfarnað kennara í þeirra flókna faglega hlutverki
Meginmarkmið þessa doktorsverkefnis er að rannsaka hvort kerfisbundin innleiðing núvitundarþjálfunar, sem heildstæð nálgun í grunnskólum, geti aukið velfarnað kennara, bætt geðheilsu þeirra og styrkt félags- og tilfinningahæfni. Rannsóknin er skoðuð út frá þeirri sýn að farsæld sé meginmarkmið menntunar og lögð er áhersla á farsæld kennara sem grundvallarforsendu farsælla menntakerfa.
Matið er í tvennu lagi; fyrst kynnir Bryndís rannsóknarskýrslu sína kl. 13–14 í stofu S-285 í Sögu og er sú kynning opin nemum í framhaldsnámi og starfsfólki Menntavísindasviðs. Hægt er að fylgjast með á Teams: Join the meeting now
Síðan er fundur þar sem matsnefnd fær tækifæri til að ræða rannsóknarskýrsluna. Fundurinn er öðrum lokaður. Tilgangur matsins er tvíþættur eins og fram kemur í Reglum um doktorsnám við Menntavísindasvið: Að meta hæfni doktorsnemans til að framkvæma rannsóknarverkefni sitt og að veita endurgjöf svo að verkefnið verði svo gott sem verða má.
Prófdómarar eru Dr. Birna María Brattberg Svanbjörnsdóttir, dósent við Háskólann á Akureyri, og Dr. Tyralynn Frazier aðjúnkt við Emory University, BNA
Aðalleiðbeinandi er Dr. Ólafur Páll Jónsson prófessor á Menntavísindasviði við Háskóla Íslands, meðleiðbeinandi Dr. Kristján Kristjánsson prófessor við the University of Birmingham, sérfræðingur í doktorsnefnd er Dr. Kristján Ketill Stefánsson, dósent á Menntavísindasviði við Háskóla Íslands.
Dr. Amalía Björnsdóttir prófessor við Menntavísindasvið er formaður matsnefndar og stýrir athöfninni.