Skip to main content

8. Ólafsþing Máls og sögu

8. Ólafsþing Máls og sögu - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
25. október 2025 9:25 til 17:00
Hvar 

Edda

Fyrirlestrasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Mál og saga býður alla velkomna á Ólafsþing fyrsta vetrardag, laugardaginn 25. október næstkomandi, í fyrirlestrasal Eddu við Arngrímsgötu.

Ráðstefnan fer nú fram í áttunda sinn og er haldin í samstarfi við Málvísindastofnun Háskóla Íslands. Hægt er að skoða útdrátt erinda á vefsíðu félagsins, malogsaga.hi.is.

Félagið býður upp á kaffiveitingar á meðan þingið stendur yfir og léttar veitingar að því loknu. Þingið er haldið í samstarfi við Málvísindastofnun Háskóla Íslands.

Dagskrá

  • 9:25–9:30 Þingið sett
  • 9:30–10:00 Haukur Þorgeirsson: Formgerð, fílólógía og félagslegir þættir – þróun hins forna hljóðasambands ‘vá’
  • 10:00–10:30 Jón Axel Harðarson: Um klofningu og stígandi tvíhljóð í fornnorrænu
  • 10:30–11:00 Kaffihlé
  • 11:00–11:30 Helgi Skúli Kjartansson: Bragreglan um „órofinn nafnlið“
  • 11:30–12:00 Teresa Dröfn Freysdóttir Njarðvík: Bragfræðileg óregla í miðaldarímum – samsláttur í braghendu og úrkasti
  • 12:00–12:30 Yelena Sesselja Helgadóttir: Um tengsl þulubyggingar við umhverfi þulunnar, eða Fylgni enn óþekk(t)
  • 12:30–13:30 Hádegishlé
  • 13:30–14:00 Þorgeir Sigurðsson: Sagnaforliðurinn ‘of’ í elsta íslensku ritmáli
  • 14:00–14:30 Guðvarður Már Gunnlaugsson: Eru 17 rithendur á íslensku hómilíubókinni? Eða aðeins ein?
  • 14:30–15:00 Aðalsteinn Hákonarson: Textafræði örnefnaskrár
  • 15:00–15:30 Kaffihlé
  • 15:30–16:00 Katrín Axelsdóttir: Hugað að hælibörvum – Lítið eitt um rúnaristuna Qorlortup Itinnera 2 (GR NOR1998;10)
  • 16:00–16:30 Guðrún Þórhallsdóttir: Leikur að orðsifjum – Taumhald, tamning, þamir og þumur í íslensku og færeysku
  • 16:30–17:00 Jón Símon Markússon: Um útjöfnun algengra beygingarvíxla í fleirtölumyndum færeyskra karlkynsnafnorða
  • 17:00 Ráðstefnuslit og léttar veitingar.

Allir velkomnir

Mál og saga býður alla velkomna á Ólafsþing fyrsta vetrardag, laugardaginn 25. október næstkomandi, í fyrirlestrasal Eddu við Arngrímsgötu.

8. Ólafsþing Máls og sögu