1+1=3 Saman erum við sterkari: Samstarf Veðurstofu Íslands og Háskóla Íslands

Aðalbygging
Hátíðarsalur
1 + 1 = 3
„Saman erum við sterkari“
Samstarf Veðurstofu Íslands og Háskóla Íslands
í rannsóknum og vöktun á náttúruvá
Háskóli Íslands og Veðurstofa Íslands boða til kynningarfundar þriðjudaginn 20. janúar kl. 14–16 í Hátíðasal Háskóla Íslands.
Á fundinum verður kynnt hið umfangsmikla og margþætta samstarf HÍ og Veðurstofunnar á sviði rannsókna, uppbyggingar rannsóknainnviða og vöktunar náttúruvár. Samstarf stofnananna gegnir mikilvægu hlutverki í að efla vísindalega þekkingu, styrkja viðbúnaðargetu samfélagsins og tryggja að ákvarðanir sem varða öryggi almennings, innviða og mannvirkja byggi á traustum gögnum og rannsóknum.
Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, og Hildigunnur H. H. Thorsteinsson, forstjóri Veðurstofu Íslands, flytja erindi. Einnig verða veittar upplýsingar um doktorsstyrk Veðurstofu Íslands og kynnt verða valin samstarfsverkefni sem sýna hvernig menntun, rannsóknir og vöktun vinna saman í þágu samfélagsins.
Dagskrá
- Silja Bára R. Ómarsdóttir rektor Háskóla Íslands og Hildigunnur H. H. Thorsteinsson forstjóri Veðurstofu Íslands - Mikilvægi og umfang samstarfs Háskóla Íslands og Veðurstofu Íslands
- Kristín S. Vogfjörð og Freysteinn Sigmundsson - Langtímauppbygging rannsókna og rannsóknarinnviða í jarðvísindum
- Guðmundur Kjærnested og Ingvar Kristinsson - Icelandic E-Research Infrastructure (IREI) og hýsing tölvukerfa á VÍ
- Bergur Einarsson og Magnús Tumi Guðmundsson - Áhættumat vegna jökulhlaupa
- Milad Kowsari, Tarek A. M. Zaqout og Chiara Lanzi - fyrrverandi og núverandi doktorsnemar við HÍ og starfsfólk Veðurstofu Íslands segir frá doktorsverkefnum sínum og tengingu þeirra við starf stofnunarinnar í dag í myndbandi.
- Guðfinna Aðalgeirsdóttir og Hrafnhildur Hannesdóttir - ICELINK og samstarf á sviði jöklarannsókna
- Morris Riedel og Matthew J Roberts - Artificial Intelligence Factory Antenna Iceland
Fundarstjóri: Sigurður Magnús Garðarsson, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs.
Léttar veitingar í lok viðburðar
Samstarfsnefnd um samning HÍ og VÍ um nám, kennslu og rannsóknir stendur að fundinum.
„Saman erum við sterkari“ Samstarf Veðurstofu Íslands og Háskóla Íslands í rannsóknum og vöktun á náttúruvá. Háskóli Íslands og Veðurstofa Íslands boða til kynningarfundar þriðjudaginn 20. janúar kl. 14–16 í Hátíðasal Háskóla Íslands.
