Skip to main content

„Óútgefin prófskírteini. Aldrei útskrifuð, aðeins minnst“

„Óútgefin prófskírteini. Aldrei útskrifuð, aðeins minnst“  - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
24. febrúar 2026 15:00 til 16:30
Hvar 

Háskólatorg

101

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Jafnréttiskólinn (GRÓ GEST), ásamt Úrkaínuverkefni Háskóla Íslands standa fyrir sýningunni „Óútgefin prófskírteini“ á „bláa veggnum” á 1. hæð á Háskólatorgi, dagana 21.–26. febrúar 2026.

Frá árinu 2023, hefur sýningin ferðast um heiminn til að heiðra minningu 40 úkraínskra námsmanna sem munu aldrei útskrifast þar sem þeir létu lífið í innrás Rússa í Úkraínu sem hófst 24. febrúar 2022.

Á prófskírteinin er rituð saga nemendanna sem létust í blóma lífsins – þessi tákn menntunar standa eftir sem minnisvarðar um skarð sem aldrei verður fyllt.

Sýningin hefur að markmiði að minna umheiminn á yfirstandandi stríð og það gjald sem Úkraínumenn greiða á degi hverjum í baráttu sinni fyrir frelsi.

Sýningin er á úkraínsku, íslensku og ensku.

Daryna Zavhorodnia, sem er nemandi við Jafnréttisskóla GRÓ GEST nú á vormisseri, er ein af upphafsmönnum sýningarinnar, sem hefur verið sett upp í háskólum og söfnum í fjölmörgum löndum á undanförnum árum. Sýningin hefur ferðast um heiminn til að heiðra minningu 40 úkraínskra námsmanna sem munu aldrei útskrifast þar sem þeir létu lífið í innrás Rússa í Úkraínu sem hófst 24. febrúar 2022.

Daryna mun ásamt fleirum taka til máls á opnunarviðburði sem haldinn verður í stofu 101 á Háskólatorgi kl. 15, þriðjudag, 24. febrúar. Opnunarviðburðurinn er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir sem og sýningin sem stendur yfir frá 21. –26. febrúar.

Jafnréttiskólinn (GRÓ GEST), ásamt Úrkaínuverkefni Háskóla Íslands standa fyrir sýningunni „Óútgefin prófskírteini“ á „bláa veggnum” á 1. hæð á Háskólatorgi, dagana 21.–26. febrúar 2026. Frá árinu 2023, hefur sýningin ferðast um heiminn til að heiðra minningu 40 úkraínskra námsmanna sem munu aldrei útskrifast þar sem þeir létu lífið í innrás Rússa í Úkraínu sem hófst 24. febrúar 2022. Á prófskírteinin er rituð saga nemendanna sem létust í blóma lífsins – þessi tákn menntunar standa eftir sem minnisvarðar um skarð sem aldrei verður fyllt. Sýningin hefur að markmiði að minna umheiminn á yfirstandandi stríð og það gjald sem Úkraínumenn greiða á degi hverjum í baráttu sinni fyrir frelsi. Sýningin er á úkraínsku, íslensku og ensku. Daryna Zavhorodnia, sem er nemandi við Jafnréttisskóla GRÓ GEST nú á vormisseri, er ein af upphafsmönnum sýningarinnar, sem hefur verið sett upp í háskólum og söfnum í fjölmörgum löndum á undanförnum árum. Sýningin hefur ferðast um heiminn til að heiðra minningu 40 úkraínskra námsmanna sem munu aldrei útskrifast þar sem þeir létu lífið í innrás Rússa í Úkraínu sem hófst 24. febrúar 2022. Daryna mun ásamt fleirum taka til máls á opnunarviðburði sem haldinn verður í stofu 101 á Háskólatorgi kl. 15, þriðjudag, 24. febrúar. Opnunarviðburðurinn er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir sem og sýningin sem stendur yfir frá 21. –26. febrúar.

„Óútgefin prófskírteini. Aldrei útskrifuð, aðeins minnst“