Skip to main content

Mástofa: Karlmennska, bakslag og leiðir til andspyrnu

Mástofa: Karlmennska, bakslag og leiðir til andspyrnu - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
18. febrúar 2026 12:30 til 14:00
Hvar 

Þjóðminjasafn Íslands

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Karlmennska, bakslag og leiðir til andspyrnu

RIKK – Rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands stendur fyrir þremur málstofum á þessu vormisseri þar sem fræðafólk af ýmsum sviðum fjallar um það bakslag sem á sér stað í jafnréttismálum víða um heim þegar enn á ný má greina aukna fordóma í garð ákveðinna hópa samfélagsins, svo sem hinsegin fólks og innflytjenda, vaxandi kvenhatur auk þess sem vegið er að grundvallarmannréttindum.

Í málstofunum er ætlunin að skoða á gagnrýninn hátt birtingarmyndir og afleiðingar þessa bakslags á pólitískum, félagslegum og lagalegum vettvangi.Fyrsta málstofan verður haldin í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands miðvikudaginn, 18. febrúar á milli klukkan 12:30 og 14:00 og ber heitið Karlmennska, bakslag og leiðir til andspyrnu („Masculinities, Backlash, and the Politics of Push Back”).

Í málstofunni verður rætt hvernig ráðandi og hervæddar ímyndir karlmennsku eru samofnar hugmyndafræði öfgahægrisins, kapítalisma og oftar en ekki í andstöðu við hugmyndir um kynjajafnrétti, inngildingu og ýmis grundvallarréttindi.Ætlunin er að ræða efnið í samhengi við þá kreppu sem greina má í baráttu fyrir mannréttindum og skoðað hvernig til að mynda ákall um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum eða „fasisma“ getur virkjað hópa til aðgerða en leiðir ekki endilega til varanlegra pólitískra umbreytinga. Þá verður sjónum beint að því hvaða leiðir megi fara til að móta aðrar pólitískar og siðferðilega réttlátari framtíðarsýnir og spurt hvaða sess til dæmis mannréttindi, kyn og loftslagsmál skipa í því samhengi.

Þátttakendur í málstofunni eru Tamara Shefer, prófessor í kvenna- og kynjafræðum við University of the Western Cape, Cape Town, Marsha Henry prófessor í kynja-, friðar- og öryggisfræðum við Institute for Peace, Security and Justice við Queen's University í Belfast og Pontus Järvstad nýdoktor og rannsóknarsérfræðingur við Háskóla Íslands.

Giti Chandra, rannsóknadósent við RIKK–Rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum stýrir pallborðinu.

Viðburðurinn fer fram á ensku.

Öll velkomin á meðan húsrúm leyfir. 

Karlmennska, bakslag og leiðir til andspyrnu RIKK – Rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands stendur fyrir þremur málstofum á þessu vormisseri þar sem fræðafólk af ýmsum sviðum fjallar um það bakslag sem á sér stað í jafnréttismálum víða um heim þegar enn á ný má greina aukna fordóma í garð ákveðinna hópa samfélagsins, svo sem hinsegin fólks og innflytjenda, vaxandi kvenhatur auk þess sem vegið er að grundvallarmannréttindum. Í málstofunum er ætlunin að skoða á gagnrýninn hátt birtingarmyndir og afleiðingar þessa bakslags á pólitískum, félagslegum og lagalegum vettvangi.Fyrsta málstofan verður haldin í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands miðvikudaginn, 18. febrúar á milli klukkan 12:30 og 14:00 og ber heitið Karlmennska, bakslag og leiðir til andspyrnu („Masculinities, Backlash, and the Politics of Push Back”). Í málstofunni verður rætt hvernig ráðandi og hervæddar ímyndir karlmennsku eru samofnar hugmyndafræði öfgahægrisins, kapítalisma og oftar en ekki í andstöðu við hugmyndir um kynjajafnrétti, inngildingu og ýmis grundvallarréttindi.Ætlunin er að ræða efnið í samhengi við þá kreppu sem greina má í baráttu fyrir mannréttindum og skoðað hvernig til að mynda ákall um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum eða „fasisma“ getur virkjað hópa til aðgerða en leiðir ekki endilega til varanlegra pólitískra umbreytinga. Þá verður sjónum beint að því hvaða leiðir megi fara til að móta aðrar pólitískar og siðferðilega réttlátari framtíðarsýnir og spurt hvaða sess til dæmis mannréttindi, kyn og loftslagsmál skipa í því samhengi. Þátttakendur í málstofunni eru Tamara Shefer, prófessor í kvenna- og kynjafræðum við University of the Western Cape, Cape Town, Marsha Henry prófessor í kynja-, friðar- og öryggisfræðum við Institute for Peace, Security and Justice við Queen's University í Belfast og Pontus Järvstad nýdoktor og rannsóknarsérfræðingur við Háskóla Íslands. Giti Chandra, rannsóknadósent við RIKK–Rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum stýrir pallborðinu. Viðburðurinn fer fram á ensku. Öll velkomin á meðan húsrúm leyfir. 

Mástofa: Karlmennska, bakslag og leiðir til andspyrnu