Skip to main content

Ljósmyndamyndasýningin Child Mothers

Ljósmyndamyndasýningin Child Mothers - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
9. febrúar 2026 11:00 til 16. febrúar 2026 16:00
Hvar 

Saga

1. hæð

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Sýningin fjallar um aðstæður ungra stúlkna sem takast á við móðurhlutverkið í ólíkum ríkjum heimsins. Markmið sýningarinnar er að vekja athygli á stöðu þeirra og veruleika og um leið mikilvægi alþjóðlegrar þróunarsamvinnu til að stuðla að auknum réttindum stúlkna og kvenna. Þar ber sérstaklega að nefna að mikilvægt sé að binda enda á skaðlegar hefðir sem hafa ótvíræð áhrif á líf stúlkubarna, líkt og barnahjónabönd og kynfæralimlestingar. Á hverju ári er áætlað að um tvær milljónir stúlkna eignist börn fyrir fimmtán ára aldur. Barnæsku þeirra er skipt út fyrir móðurhlutverk – oft gegn þeirra vilja. Stúlkur í slíkri stöðu geta staðið fyrir miklum hindrunum í lífinu þar sem þær ná oft ekki að mennta sig, giftast ungar og margar hverjar lifa með alvarlegum heilsufarsvandamálum tengdum meðgöngu þar sem þær hafa ekki náð fullum líkamsþroska.

UNFPA, Mannfjöldasjóður Sameinuðu þjóðanna er sú stofnun SÞ sem vinnur að því að efla og tryggja kyn- og frjósemisheilsu og réttindi stúlkna og kvenna. Stofnunin vinnur í yfir 150 löndum og á í samstarfi við stjórnvöld, borgarasamfélag, einkageirann, fræðisamfélagið og tileinkar sér mannréttindamiðaða nálgun í öllu starfi sínu. Stofnunin leggur áherslu á að efla möguleika kvenna og ungs fólks til áhrifa.

Ljósmyndasýningin er sett upp í tengslum við Jafnréttisdaga Háskóla Íslands og viðburðinn 'Beyond equality: Who makes peace?' sem haldinn verður á Sögu 12. febrúar 12:00-13:00. Sýningin er sett upp í samstarfi Félags SÞ á Íslandi við Mannfjöldasjóð SÞ og Menntavísindasvið HÍ, með styrkveitingu utanríkisráðuneytisins. 

Ljósmyndasýningin Child Mothers er sett upp í tengslum við Jafnréttisdaga Háskóla Íslands og viðburðinn 'Beyond equality: Who makes peace?' sem haldinn verður á Sögu 12. febrúar 12:00-13:00. Sýningin er sett upp í samstarfi Félags SÞ á Íslandi við Mannfjöldasjóð SÞ og Menntavísindasvið HÍ, með styrkveitingu utanríkisráðuneytisins. 

Ljósmyndamyndasýningin Child Mothers