Skip to main content

Áfangamat: Bryndís Jóna Jónsdóttir

Áfangamat: Bryndís Jóna Jónsdóttir - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
13. febrúar 2026 13:00 til 14:00
Hvar 

Saga

S-285

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Farsælir kennarar – farsæl menntun

Möguleg áhrif núvitundarþjálfunar á starfstengdan velfarnað kennara í þeirra flókna faglega hlutverki

Meginmarkmið þessa doktorsverkefnis er að rannsaka hvort kerfisbundin innleiðing núvitundarþjálfunar, sem heildstæð nálgun í grunnskólum, geti aukið velfarnað kennara, bætt geðheilsu þeirra og styrkt félags- og tilfinningahæfni. Rannsóknin er skoðuð út frá þeirri sýn að farsæld sé meginmarkmið menntunar og lögð er áhersla á farsæld kennara sem grundvallarforsendu farsælla menntakerfa.

Matið er í tvennu lagi; fyrst kynnir Bryndís rannsóknarskýrslu sína kl. 13–14 í stofu S-285 í Sögu og er sú kynning opin nemum í framhaldsnámi og starfsfólki Menntavísindasviðs. Hægt er að fylgjast með á Teams: Join the meeting now

Síðan er fundur þar sem matsnefnd fær tækifæri til að ræða rannsóknarskýrsluna. Fundurinn er öðrum lokaður. Tilgangur matsins er tvíþættur eins og fram kemur í Reglum um doktorsnám við Mennta­vísinda­svið: Að meta hæfni doktorsnemans til að framkvæma rannsóknarverkefni sitt og að veita endurgjöf svo að verkefnið verði svo gott sem verða má.

Prófdómarar eru Dr. Birna María Brattberg Svanbjörnsdóttir, dósent við Háskólann á Akureyri, og Dr. Tyralynn Frazier aðjúnkt við Emory University, BNA

Aðalleiðbeinandi er Dr. Ólafur Páll Jónsson prófessor á Menntavísindasviði við Háskóla Íslands, meðleiðbeinandi Dr. Kristján Kristjánsson prófessor við the University of Birmingham, sérfræðingur í doktorsnefnd er Dr. Kristján Ketill Stefánsson, dósent á Menntavísindasviði við Háskóla Íslands.
 Dr. Amalía Björnsdóttir prófessor við Menntavísindasvið er formaður matsnefndar og stýrir athöfninni.