Klofasteinar fyrir norðan

Edda
Fyrirlestrasal
Helgi Þorláksson, prófessor emeritus í sagnfræði við Háskóla Íslands, flytur fyrirlestur á vegum Miðaldastofu Háskóla Íslands í fyrirlestrasal Eddu, fimmtudaginn 5. febrúar kl. 16:30. Fyrirlesturinn nefnist „Klofasteinar fyrir norðan. Geta klofasteinar sagt eitthvað um landnám Íslands og þá hvað helst?“
Um fyrirlesturinn
Fyrirlesari birti grein árið 2023 þar sem settar eru fram ábendingar um að stórtækir landnámsmenn á Íslandi muni hafa getað ákveðið hvar mörk skyldu vera milli svæða eða stórra jarða sem þeir námu og útdeildu. Vísbendingar um þetta taldi fyrirlesari vera allstóra, klofna steina, svonefnda klofasteina, á mörkum á Suðurlandi, suðvesturhorni landsins og í Borgarfirði, alls 34 dæmi. Hann rökstuddi að steinarnir hefðu iðulega fengið þetta hlutverk á elstu tíð. Fyrirlesari ber núna saman við 39 klofasteina á mörkum í þremur sýslum nyrðra, Húnavatnssýslu, Skagafjarðarsýslu og Eyjafjarðarsýslu.
Um fyrirlesarann
Helgi Þorláksson er prófessor emeritus í sagnfræði við Háskóla Íslands. Hann fékkst í kennslu og rannsóknum einkum við Íslands- og Norðurlandasögu frá um 900 til um 1800, svið pólitískrar sögu, félagssögu og hagsögu. Doktorsritgerð hans fjallar um hagsögu Íslands á 13. og 14. öld og náin tengsl við Noreg.
Fyrirlesturinn verður haldinn á íslensku og er öllum opinn.
Helgi Þorláksson, prófessor emeritus í sagnfræði.
