Skip to main content

Grænland, Trump og auðmennirnir

Grænland, Trump og auðmennirnir - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
27. janúar 2026 12:00 til 13:00
Hvar 

Oddi

101

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Opinn fundur á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, þriðjudaginn 27. janúar frá kl. 12:00–13:00 í
Odda 101, Háskóla Íslands.

Núverandi samningar milli Bandaríkjanna, Danmerkur og Grænlands, sem og utanríkis-, öryggis- og varnarmálastefna Grænlands, veita Bandaríkjunum víðtækt svigrúm til að semja um það sem Bandaríkin gætu viljað eða þurft frá Grænlandi. Hvað býr að baki ásælni Trumps um að “eiga” Grænland – og hvers vegna núna?

Í þessu erindi heldur Page Louise Wilson því fram að tímasetning og eðli krafna Trumps varðandi Grænland tengist ekki raunverulegum þjóðar-, efnahags- eða öryggishagsmunum Bandaríkjanna, heldur snúist alfarið um að styrkja hans pólitíska valdsvið.

Page Louise Wilson er öryggisfræðingur og dósent við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands.

Fundarstjóri er Galadrielle Pommereau, doktorsnemi við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands.

Öll velkomin. Vinsamlegast skráið þátttöku hér: https://forms.office.com/e/yebFq5AUq1

Athugið að fundurinn fer fram á ensku.

Opinn fundur á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, þriðjudaginn 27. janúar frá kl. 12:00–13:00 íOdda 101, Háskóla Íslands.

Grænland, Trump og auðmennirnir