Skip to main content

Frá Breiðafirði til Lancashire

Frá Breiðafirði til Lancashire  - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
25. nóvember 2025 12:00 til 13:00
Hvar 

Edda

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Svanhildur Óskarsdóttir flytur fyrirlestur í Eddu kl. 12 25. nóvember í tengslum við handritasýninguna Heimur í orðum.

Um þessar mundir má finna sjaldséða gersemi á sýningunni. Hér er um að ræða agnarlítið handrit frá 15. öld sem Árni Magnússon fékk í Flatey á Breiðafirði og fór með til Kaupmannahafnar.

Af ókunnum orsökum hvarf það úr safni hans, komst í eigu þýsks bókasafnara en var síðan selt á uppboði í Lundúnum árið 1870 og prýddi um hríð einkabókasafn jarlsins af Crawford í Haigh Hall í Lancashire.

Í fyrirlestrinum verður fjallað um handritið, efni þess og sögu.

Svanhildur Óskarsdóttir flytur fyrirlestur í Eddu kl. 12 25. nóvember í tengslum við handritasýninguna Heimur í orðum.

Frá Breiðafirði til Lancashire