Lokaviðburður Snjallræðis

Nauthól
Lokaviðburður Snjallræðis fer fram fimmtudaginn 11. desember kl. 9 á Nauthóli í Reykjavík.
Undanfarnar 16 vikur hafa teymin í háskólahraðlinum Snjallræði unnið við að þróa og móta hugmyndir að verkefnum sem ætlað er að hafa jákvæð áhrif á samfélag, umhverfi og hagkerfi. Nú er komið að því að teymin kynni afraksturinn!
Snjallræði er háskólahraðall, samstarfsverkefni milli Háskóla Akureyrar, Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík. Markmiðið er að þjálfa teymi í sprotahönnun þannig að þau geti fært hugmyndir sínar upp á næsta stig í þróunarferlinu. Kjarninn í hraðlinum eru vinnustofur um nýsköpun og hönnunarhugsun, haldnar í samstarfi við MITdesignX.
Uppskeruhátíðin er einstakt tækifæri fyrir þekkingarsamfélagið, fjárfesta, frumkvöðla og áhugafólk um nýsköpun til að hitta teymi sem vinna að lausnum á brýnum áskorunum samtímans.
Lokaviðburður Snjallræðis fer fram fimmtudaginn 11. desember kl. 9 á Nauthóli í Reykjavík.
