Heilsan okkar: Aðferðir til að líða sem best í skammdeginu

Veröld - Hús Vigdísar
Fyrirlestrasalur
Heilsan okkar – Aðferðir til að líða sem best í skammdeginu
Þriðji fundur í fundaröðinni Heilsan okkar haustið 2025 fer fram í Veröld – húsi Vigdísar föstudaginn 28. nóvember kl. 11:30 til 13:00
Markmið fundarins er að veita yfirsýn yfir stöðu vísindalegrar þekkingar tengt líðan og heilsu í skammdeginu.
Umsjón og ritstjórn: Jóhanna E. Torfadóttir
Fundarstjóri: Arna Hauksdóttir, prófessor og forstöðumaður Miðstöðvar í lýðheilsuvísindum
Hlekkur á beint streymi: https://vimeo.com/event/5541554?fl=so&fe=fs
Dagskrá
- Erik Brynjar Schweitz Eriksson, geðlæknir – Skammdegisþunglyndi, einkenni og úrræði
- Hildur Guðný Ásgeirsdóttir, verkefnisstjóri hreyfingar hjá embætti landlæknis – Hvernig hefur hreyfing áhrif á líðan?
- Helga Arnarsdóttir, verkefnisstjóri geðræktar hjá embætti landlæknis – Leiðir til að efla andlega líðan með HappApp
- Edda Björk Þórðardóttir, sálfræðingur og dósent við Miðstöð í lýðheilsuvísindum – Að byggja upp góðan dag yfir vetrartímann
- Erla Björnsdóttir, Sálfræðingur og framkvæmdastjóri Betri svefns - Betri svefn – Betri líðan í skammdeginu
- Pallborð – umræður
Heilsan okkar er fundaröð Háskóla Íslands og Landspítala sem hefur það að markmiði að varpa ljósi á áríðandi mál líðandi stundar er varða heilsu og heilbrigðisþjónustu. Þessir mánaðarlegu upplýsingafundir eru öllum opnir og verða á dagskrá síðasta föstudag hvers mánaðar.