Skip to main content

„Af hverju leggur þú ekki bara fyrir?“ Málþing um líf í fjötrum fátæktar

„Af hverju leggur þú ekki bara fyrir?“ Málþing um líf í fjötrum fátæktar - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
28. nóvember 2025 12:00 til 14:00
Hvar 

Norræna Húsið

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Húsið opnar 11:15, létt hádegishressing í boði, vinsamlegast skrá sig hér svo hægt sé að áætla fjölda fyrir 26. nóv:

SKRÁNING Í VEITINGAR

Félagsráðgjafardeild og Pepp grasrót fólks í fátækt og félagslegri einangrun bjóða öll velkomin til málþings, sem samfélagssjóður HÍ hefur styrkt. Þar verða rannsóknarniðurstöður kynntar og rætt um stöðu og áskoranir fólks í fjötrum fátæktar.

Dagskrá:

Fundarstjóri: Elva Dögg Hafberg Gunnarsdóttir

12:00 Guðný Björk Eydal, prófessor við Félagsráðgjafardeild HÍ og Laufey Líndal Ólafsdóttir, formaður Pepp kynna samstarfsverkefnið um lifaða fátækt

12:20 Halldór S. Guðmundsson, prófessor við Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands: Þróun fátæktar í tölum

12:35 Guðrún E. Bentsdóttir og Súsanna Finnbogadóttir, rannsakendur: Örsögur úr rýnihópaviðtölum

12:45 Jóhanna Freyja Ásgeirsdóttir, félagsráðgjafi Landspítala Háskólasjúkrahúsi: „Tryggingastofnun á mig“- kynning á lífssögum og lifaðri fátækt

13:00 Guðrún E. Bentsdóttir og Súsanna Finnbogadóttir, rannsakendur: Örsögur úr rýnihópaviðtölum

13:10 Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir, stjórnarmaður í Pepp: Daglegt líf í fátækt

13:20 Pallborð: Áskoranir sem mæta fólki í fátækt, sjónarhorn þriðja geirans

  • Laufey Líndal Ólafsdóttir, formaður Pepp, stýrir pallborðsumræðum
  • Anna H. Pétursdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur
  • Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi Hjálparstarfi kirkjunnar
  • Geirdís Hanna Kristjánsdóttir, formaður kjarahóps Öyrkjabandalags Íslands

13:50 Steinunn Þóra Árnadóttir, formaður EAPN á Íslandi: Samantekt og lokaorð

Öll velkomin.

Málþingið er í boði Félagsráðgjafardeildar og PEPP og hefur fengið styrk frá samfélagssjóði

„Af hverju leggur þú ekki bara fyrir?“ Málþing um líf í fjötrum fátæktar