PRICE fyrirlestur: lífeyrissjóðir og lífskjör eldra fólks

Þjóðminjasafnið (fyrirlestrasalur)
Í erindinu er fjallað um þróun lífskjara og lágtekjuhlutfalla eldri borgara frá aldamótum á grundvelli skráargagna Hagstofu Íslands. Lífskjör eldra fólks hafa batnað verulega frá aldamótum og lágtekjuhlutföllin benda til þess að það hafi náðst fádæma árangur í baráttunni gegn fátækt þessa hóps. Í erindinu verður rýnt í ýmsa áhrifaþætti sem kunna að skýra þessa þróun en niðurstaðan bendir til að hann skýrist fyrst og fremst af vaxandi réttindum eldra fólks í lífeyriskerfinu.
Kolbeinn Stefánsson flytur fyrirlesturinn. Kolbeinn varði DPhil ritgerð sína í félagsfræði frá Oxfordháskóla árið 2013 og starfar sem dósent við Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands.
Kolbeinn Stefánsson flytur fyrirlesturinn. Kolbeinn varði DPhil ritgerð sína í félagsfræði frá Oxfordháskóla árið 2013 og starfar sem dósent við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands.
