Með nesti og nýja skó - Útgáfuhóf

Saga
Vegna útkomu bókarinnar Með nesti og nýja skó: Greinar um tengsl leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila verður blásið til útgáfuhófs þann 7. október klukkan 15:00 á 5. hæð Sögu. Bókin er gefin út af Háskólaútgáfunni og er í ritstjórn Jóhönnu Einarsdóttur Prófessors Emeritus við Menntavísindasvið og Björns Rúnars Egilssonar, lektors við Menntavísindasvið.
Dagskrá:
15.00-15.05: Kolbrún Þorbjörg Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs opnar viðburðinn.
15.05-15.10. Jóhanna Einarsdóttir kynnir efnistök bókarinnar.
15.10-15.15: Björn Rúnar Egilsson kynnir kaflann Þáttaskil við lok leikskóla og upphaf grunnskólagöngu frá sjónarhóli foreldra drengja og stúlkna.
15.15-15.20: Sara Margrét Ólafsdóttir kynnir kaflann Skref í átt að fullgildi í nýju skólasamfélagi: Reynsla barna af því að segja skilið við leikskóla og byrja í grunnskóla og frístundaheimili.
Bókin verður til sölu fyrir áhugasama.
Boðið verður upp á léttar veitingar
Hlökkum til að sjá ykkur
Með nesti og nýja skó
