Hvað er í gangi í íslenskri máltækni? Táknmál og málnematextar

Hvenær
6. október 2025 15:00 til 16:30
Hvar
Veröld - Hús Vigdísar
Stofa 008
Nánar
Aðgangur ókeypis
Í haust fara fram vikulegir fyrirlestrar á vegum Máltækniseturs. Fyrirlesarar frá HÍ, Árnastofnun og HR kynna yfirstandandi rannsóknarverkefni og nýsköpunarfyrirtæki segja frá starfsemi sinni. Fjallað verður um efni á borð við risamállíkön og gervigreind, talgreiningu og -gervingu og málvinnslu.
Mánudaginn 6. október eru tveir fyrirlestrar á dagskrá:
- Kl. 15–15:40. Táknað og talað: Lýsing á rannsóknaráætlun. Torfi Þórhallsson og Jón Guðnason.
- Kl. 15:50–16:30. Úrvinnsla nematexta í íslensku sem öðru máli og sjálfvirk flokkun getustigs. Isidora Glišić.
Fyrirlestraröðin fer fram í stofu 008 í Veröld. Táknmálstúlkun verður í boði í fyrra erindinu.
Mánudaginn 6. október eru tveir fyrirlestrar á dagskrá í fundaröð Máltækniseturs.
