Skip to main content

Heilsan okkar: Næring og fæðuumhverfi barna og unglinga

Heilsan okkar: Næring og fæðuumhverfi barna og unglinga - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
26. september 2025 11:30 til 13:00
Hvar 

Fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Heilsan okkar – Næring og fæðuumhverfi barna og unglinga

Fyrsti fundur í fundaröðinni Heilsan okkar haustið 2025 fer fram í fundarsal Þjóðminjasafnsins föstudaginn 26. september kl. 11:30 til 13:00

Góð næring á barns- og unglingsárum er grundvöllur heilbrigðs þroska og vaxtar. Mörg næringar efni koma við sögu eins og joð sem skiptir miklu máli fyrir þroska heilans, sérstaklega á fyrstu árum ævinnar. Matarvenjur sem myndast í æsku fylgja oft einstaklingum út lífið og hafa áhrif á langtímaheilsu. Hvað vitum við t.d. um áhrif koffíns á heilsu ungmenna? Er matvendni barna vandamál?

Umsjón og ritstjórn: Jóhanna E. Torfadóttir
Fundarstjóri: Þórður Þórkelsson, barnalæknir
Hlekkur á beint streymi frá fundinum: https://www.youtube.com/live/srh8QIaYNU4

Dagskrá

  • Jóhanna E. Torfadóttir, lektor við Miðstöð í lýðheilsuvísindum HÍ og verkefnisstjóri næringar hjá embætti landlækni – Rannsókn á joðhag 2-3 ára barna á Íslandi
  • Birna Þórisdóttir, lektor við Matvæla- og næringarfræðideild HÍ – Skvísur og annar matur - hvað borða börnin okkar?
  • Anna Sigríður Ólafsdóttir, prófessor í næringarfræði við Menntavísindasvið HÍ og við Uppsala háskóla, Svíþjóð – Matvendni barna - er tilefni til að taka hana alvarlega?
  • Ingibjörg Gunnarsdóttir, prófessor í næringarfræði við Matvæla- og næringarfræðideild HÍ – Koffín neysla, fæðuval og svefn unglinga.

Heilsan okkar er fundaröð Háskóla Íslands og Landspítala sem hefur það að markmiði að varpa ljósi á áríðandi mál líðandi stundar er varða heilsu og heilbrigðisþjónustu. Þessir mánaðarlegu upplýsingafundir eru öllum opnir og verða á dagskrá síðasta föstudag hvers mánaðar.

Heilsan okkar er fundaröð Háskóla Íslands og Landspítala sem hefur það að markmiði að varpa ljósi á áríðandi mál líðandi stundar er varða heilsu og heilbrigðisþjónustu. Þessir mánaðarlegu upplýsingafundir eru öllum opnir og verða á dagskrá síðasta föstudag hvers mánaðar.

Heilsan okkar: Næring og fæðuumhverfi barna og unglinga