Að tilheyra engum bókmenntum - 50 ára ártíð Gunnars Gunnarssonar

Veröld - Hús Vigdísar
Auðarsalur
Í tilefni 50 ára ártíðar Gunnars Gunnarssonar verður efnt til opins málþing um Gunnar, bókmenntir innflytjenda og Aðventu í Veröld og Eddu laugardaginn 15. nóvember.
Málþingið fer fram á íslensku og málþingsstjóri er Skúli Björn Gunnarsson, forstöðumaður Gunnarsstofnunar.
9:15 Setningarávarp Loga Einarssonar menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra
9:20 Erindi um Gunnar Gunnarsson og innflytjendabókmenntir:
Jón Yngvi Jóhannsson, bókmenntafræðingur og dósent við Háskóla Íslands
Ana Stanićević, menningarfræðingur og lektor við Háskólann í Helsinki
Pallborðsumræður rithöfunda:
Natasha S, Jakub Stachowiak, Joachim B. Schmidt, Helen Hafgnýr Cova og Ana Mjallhvít Drekadóttir segja frá sinni reynslu og lesa úr eigin verkum.
Umræðunum, sem fara fram á íslensku, stýrir Victoria Snærós Bakshina.
10:40 Kaffihlé
11:00 Erindi og umræður um Aðventu:
Kim Lembek, þýðandi og fræðimaður, segir frá rannsóknum sínum á dönskum og íslenskum útgáfum sögunnar.
Pallborðsumræður fræðimanna og rithöfunda:
Rithöfundarnir Sigurbjörg Þrastardóttir og Nína Ólafsdóttir ásamt Jóni Yngva Jóhannssyni og Kim Lembek ræða um Aðventu. Umræðunum stýrir Oddný Eir
Ævarsdóttir.
12:15 Hádegishlé með veitingum í boði menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins og norrænna sendiráða.
Klukkan 13:00 hefst lestur á Aðventu á 20 tungumálum samtímis vítt og breitt um Veröld og Eddu. Opið fyrir gesti og gangandi sem er frjálst að flakka á milli málheima að vild.
Nánari upplýsingar á skriduklaustur.is
Í tilefni 50 ára ártíðar Gunnars Gunnarssonar verður efnt til opins málþing í Auðarsal í Veröld - húsi Vigdísar laugardaginn 15. nóvember.
