Stóra LEGOkeppni grunnskólanna 2025

Háskólabíó við Hagatorg
LEGOkeppni grunnskólanna, FIRST® LEGO® League Ísland, fer fram í Háskólabíói laugardaginn 8. nóvember. 19 lið úr grunnskólum víðsvegar um landið taka þátt í ár!
Keppnin stendur yfir frá um kl 9.30 um morguninn en í boði verður fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna sem hefst kl. 13:00.
Vísindasmiðja Háskóla Íslands mun leiða gesti á öllum aldri inn í töfraheim vísindanna. Fornleifafræði HÍ og Árnastofnun bjóða upp á smiðjur, fræði og fjör og gestir eru hvattir til að spreyta sig á einföldum legóþrautum og grafa eftir gersemum í jörðu!
Þema keppninnar í ár er „uppgröftur“ (e. UNEARTHED) og munu liðin í FIRST® LEGO® League nota aðferðir STEM greina (vísindi, tækni, verkfræði og stærðfræði) og vinna saman að því að afhjúpa nýjar upplýsingar um okkur og samfélög okkar, allt til að byggja betri heim.
Kynnir keppninnar verður Katrín Lilja Sigurðardóttir, einnig þekkt sem Sprengju-Kata, og Björn Gíslason mun lýsa keppninni. Dómarar eru Eyjólfur Brynjar Eyjólfsson, Sigrún Baldursdóttir og Steinunn Kristjánsdóttir (nýsköpunarverkefni), Hafliði Ásgeirsson og Hafsteinn Einarsson (hönnun og forritun), lið TEAM SPARK og félagar í ADA (vélmennakappleikur). Yfirdómari er Mathias Book.
Keppnin verður einnig sýnd í beinu streymi: https://vimeo.com/event/5484260/embed/a7dcace10b/interaction
Verið öll hjartanlega velkomin að fylgjast með keppninni!
LEGOkeppni grunnskólanna, FIRST® LEGO® League Ísland, fer fram í Háskólabíói laugardaginn 8. nóvember.
