Hvað er í gangi í íslenskri máltækni? Miðeind og EILisCh-verkefnið

Hvenær
20. október 2025 15:00 til 16:30
Hvar
Veröld - Hús Vigdísar
Stofa 008
Nánar
Aðgangur ókeypis
Í haust fara fram vikulegir fyrirlestrar á vegum Máltækniseturs. Fyrirlesarar frá HÍ, Árnastofnun og HR kynna yfirstandandi rannsóknarverkefni og nýsköpunarfyrirtæki segja frá starfsemi sinni. Fjallað verður um efni á borð við risamállíkön og gervigreind, talgreiningu og -gervingu og málvinnslu.
20. október eru tveir fyrirlestrar á dagskrá:
- Kl. 15–15:40. Fyrirtækjakynning: Miðeind. Linda Heimisdóttir.
- Kl. 15:50–16:30. EILisCh-verkefnið: Félagsmálfræði í Alþingismálheildinni. Anton Karl Ingason.
Fyrirlestraröðin fer fram í stofu 008 í Veröld.
Í haust fara fram vikulegir fyrirlestrar á vegum Máltækniseturs.
