Skip to main content

Hvað er í gangi í íslenskri máltækni? Táknmál og málnematextar

Hvað er í gangi í íslenskri máltækni? Táknmál og málnematextar - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
6. október 2025 15:00 til 16:30
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Stofa 008

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Í haust fara fram vikulegir fyrirlestrar á vegum Máltækniseturs. Fyrirlesarar frá HÍ, Árnastofnun og HR kynna yfirstandandi rannsóknarverkefni og nýsköpunarfyrirtæki segja frá starfsemi sinni. Fjallað verður um efni á borð við risamállíkön og gervigreind, talgreiningu og -gervingu og málvinnslu.

Mánudaginn 6. október eru tveir fyrirlestrar á dagskrá: 

  • Kl. 15–15:40. Táknað og talað: Lýsing á rannsóknaráætlun. Torfi Þórhallsson og Jón Guðnason.
  • Kl. 15:50–16:30. Úrvinnsla nematexta í íslensku sem öðru máli og sjálfvirk flokkun getustigs. Isidora Glišić.

    Fyrirlestraröðin fer fram í stofu 008 í Veröld. Táknmálstúlkun verður í boði í fyrra erindinu.

    Mánudaginn 6. október eru tveir fyrirlestrar á dagskrá í fundaröð Máltækniseturs.

    Hvað er í gangi í íslenskri máltækni? Táknmál og málnematextar