Skip to main content

Menntakvika: Skapandi smiðjur í Sögu  

Menntakvika: Skapandi smiðjur og kynningar - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
4. október 2025 11:00 til 13:00
Hvar 

SAGA

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Boðið er upp á nýjung á Menntaviku í ár! Laugardaginn 4. október kl. 11:00–13:00 verða haldnar fjölbreyttar skapandi smiðjur í glæsilegu nýju húsnæði Menntavísindasviðs í Sögu

Laugardagurinn á Menntakviku er hugsaður sem vettvangur þar sem gestir geta tekið virkan þátt í lifandi og fjölbreyttum smiðjum sem sýna hvernig unnið er með nám og kennslu á sviði menntavísinda og gefst dýrmætt tækifæri til samvinnu fræða og fagvettvangs.

Smiðjurnar eru öllum opnar en takmarkaður fjöldi plássa er í hverja smiðju. Því er mikilvægt að skrá sig tímanlega.

Í smiðjum Menntakviku býðst gestum til dæmi að:

  • Prófa - stagað, stoppað í og lagað: Fataviðgerðir og samtal um skapandi sjálfbærni
  • Taka þátt í Ævintýri hvalsins– þar sem hlutverkaleikur og leiklist nýtast til að efla skilning og lærdóm 
  • Uppgötva töfra tónlistar og hringformsins– í tónlistariðkun með ungum börnum og fjölskyldum 
  • Læra aðferðir til að styrkja hópa og efla jákvætt skólaumhverfií smiðjunni Sterkir hópar, besta forvörnin 
  • Kanna hvernig ljóðmennt getur eflt dygðir– og skapað rými fyrir ígrundun og persónuþroska 
  • Kynnast Leikstofunni í kennslu- og menntunarfræði– sérhæfðri stofu þar sem leikur og nám mætast 

 Sjá allar smiðjur og dagskrá hér

Verið hjartanlega velkomin í skapandi smiðjur í Sögu laugardaginn 4. október.

    Nánari upplýsingar og skráning: www.menntakvika.hi.is

    Verið hjartanlega velkomin í Sögu laugardaginn 4. október á lokadag Menntakviku í skapandi smiðjur.

    Menntakvika: Skapandi smiðjur