Skip to main content

Eru evrópskir háskólar í fararbroddi?

Eru evrópskir háskólar í fararbroddi?  - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
14. október 2025 13:00 til 14:30
Hvar 

Norræna húsinu

Nánar 
Vinsamlega skráið þátttöku

Málþing, 14. október kl. 13.00-14.30 í Norræna húsinu um ávinning og áskoranir íslenskra háskóla í evrópskum háskólanetum fyrir nemendur, starfsfólk, stöðu háskólanna og samfélagið.

Vinsamlega skráið þátttöku með því að fylla út skráningarformið.

Öll velkomin en einnig verður boðið uppá streymi.

Innan Evrópu er nú lögð rík áhersla á dýpra samstarf háskóla en áður hefur þekkst með fjármögnun evrópskra háskólaneta. Netin eiga að styðja við nýsköpun í kennslu og rannsóknum til að mæta örum samfélagsbreytingum og fjölþættum áskorunum nútímans. Háskólum í netum er þannig ætlað að ýta undir bæði sjálfbæra þróun til framtíðar og samkeppnishæfni Evrópu.

Hvernig er hægt að tryggja að háskólar standi við þessi áform? Hvað gengur vel og hvað mætti betur fara í starfi íslenskra háskóla í netum og í samstarfi þeirra við ýmsa aðila í samfélaginu?

Fjórir íslenskir háskólar eru hver um sig í einu af 65 háskólanetum í Evrópu. Málþingið er haldið í samstarfi við Landskrifstofu Erasmus+ á Íslandi og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið.

Dagskrá:

Kl. 12.30 Húsið opnar – léttur hádegisverður í boði

Kl. 13.00-14.30:

  • Ávarp menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra – Logi Einarsson
  • Ávarp sendiherra ESB á Íslandi – Clara Ganslandt

Pallborð: Ávinningur og áskoranir íslenskra háskóla í evrópskum háskólanetum

  • Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor Háskólans á Bifröst
  • Ragnhildur Helgadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík
  • Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands
  • Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands

Ávarp: Þátttaka stúdenta í evrópskum háskólanetum

  • Lísa Margrét Gunnarsdóttir, forseti Landssamtaka íslenskra stúdenta

Pallborð: Nýsköpun evrópskra háskólaneta fyrir þróun náms, vísinda og atvinnutækifæra

  • Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Klak - Icelandic Startups
  • Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, aðstoðarrektor náms, nemenda og sjálfbærni HR
  • Einar Hreinsson, gæðastjóri Háskólans á Bifröst
  • Jón Grétar Sigurjónsson, kennslustjóri LbhÍ
  • Magnús Þór Torfason – sviðsforseti félagsvísindasviðs HÍ

Eru evrópskir háskólar í fararbroddi? - ávinningur af þátttöku íslenskra háskóla í evrópskum háskólanetum

Eru evrópskir háskólar í fararbroddi?