Nýnemadagar: HÍ/HR dagurinn

Hvenær
4. september 2025 15:00 til 18:00
Hvar
Malarstæðið við Októberfest
Nánar
Aðgangur ókeypis
Hér mætast fulltrúar HÍ og HR í æsilegum og mis-íþróttamannslegum kappleikjum.
HÍ vann glæstan sigur í fyrra og hefur því titil og heiður að verja. Stuðningsfólk er mikilvægasti leikmaðurinn og því eru öll hvött til að mæta og styðja sitt lið.
Atið fer fram á malarstæðinu fyrir framan Októberfest-svæðið og hefst kl. 15, fimmtudaginn 4. september.