Skip to main content

Netfyrirlestur pólskra fræða: Tómstundir og ferðalög Varsjárbúa á 18. öld

Netfyrirlestur pólskra fræða: Tómstundir og ferðalög Varsjárbúa á 18. öld - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
29. september 2025 15:00 til 16:30
Hvar 
Nánar 
Aðgangur ókeypis

Dr. Agata Wdowik, sérfræðingur hjá culture.pl., flytur opinn netfyrirlestur mánudaginn 29. september kl. 15:00-16:30 á vegum pólskra fræða við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands. Fyrirlesturinn nefnist „Tómstundir og ferðalög Varsjárbúa á 18. öld.“ Hann verður fluttur á ensku. 

Smellið hér til að horfa.

Námsleið í pólskum fræðum við Háskóla Íslands, í samstarfi við Háskólann í Varsjá og NAWA (The National Agency for Academic Exchange), býður upp á röð netfyrirlestra í haust sem helgaðir eru pólsku og evrópsku upplýsingaröldinni. Smellið hér til að skoða dagskrá fyrirlestraraðarinnar.

Dr. Agata Wdowik, sérfræðingur hjá culture.pl.

Netfyrirlestur pólskra fræða: Tómstundir og ferðalög Varsjárbúa á 18. öld