Skip to main content

Kynja- og margbreytileikasjónarmið á Kvennaári: Þriðja vaktin í ólíkum sambandsformum

Kynja- og margbreytileikasjónarmið á Kvennaári: Þriðja vaktin í ólíkum sambandsformum - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
10. september 2025 12:00 til 13:00
Hvar 

Háskólatorg

HT-103

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Kynjafræði við Stjórnmálafræðideild, í samvinnu MARK – Miðstöð margbreytileika og kynjarannsókna, býður til fundaraðar um kynja- og margbreytileikasjónarmið á Kvennaári. Í þetta sinn er sjónum beint að áherslum Kvennaárs um ólaunaða vinnu og umönnunarábyrgð, og kynntar verða niðurstöður rannsóknar á hugrænni vinnu eða „þriðju vaktinni“ í gagnkynja og hinsegin samböndum.

Fyrirlesari er Ragnheiður Davíðsdóttir, MA í kynjafræði. Erindi Ragnheiðar ber heitið: Þriðja vaktin á íslenskum heimilum: Dulin misskipting í jafnréttisparadís?

Í pallborði verða Gabríel Benjamín, fulltrúi í jafnréttisnefnd VR, og Anton Örn Karlsson, deildarstjóri Þróunar hjá Hagstofu Íslands. Fundarstjóri verður Finnborg S. Steinþórsdóttir, lektor í kynjafræði.

Um fundaröðina:

Margt hefur áunnist í jafnréttismálum síðustu áratugi, og til að stuðla að framþróun er gagnlegt að skapa vettvang þar sem rannsakendur og hagaðilar, sem eru nú þegar að vinna gott verk á sviðinu, geta rýnt í stöðuna og rætt helstu áskoranir. Kvennaár hefur sett fram kröfur sem má skipta upp í þrjár áherslur: vanmat á kvennastörfum og launajafnrétti; ólaunaða vinnu og umönnunarábyrgð; og kynbundið ofbeldi. Á hverjum fundi verður eitt áherslusvið tekið fyrir, með kynja- og margbreytileikasjónarmið í forgrunni.